Svalandi sumardrykkur í sólinni

Drykkurinn er sumarlegur og sætur.
Drykkurinn er sumarlegur og sætur. Ljósmyndari / Berglind Guðmundsdóttir

„Strawberry daiquiry er svalandi sumardrykkur sem ávallt slær í gegn,“ segir Berglind Guðmundsdóttir sem heldur úti hinni girnilegu uppskriftasíðu Gulur rauður grænn & salt.

„Hér er hann í óáfengri útgáfu en [...] að sjálfsögðu lítið mál að bæta við því sem hverjum og einum hentar út í glasið.“

Það sem til þarf:

1 lítri appelsínusafi

Handfylli af klaka

½ askja jarðarber

2 msk flórsykur

½ lítri sítrónutoppur

Öllu skellt í blandara og hellt í falleg glös. Uppskrift nægir fyrir sirka fjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert