Litríkar kóríander-tortillur

Rétturinn er fullkominn sumarmatur, einfaldur í gerð, litríkur og afar …
Rétturinn er fullkominn sumarmatur, einfaldur í gerð, litríkur og afar bragðgóður. Ljósmynd/Gulur, rauður, grænn og salt

Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á síðunni Gulur, rauður, grænn og salt, deildi uppskrift að þessum dásamlegu tortillum með kínóa, sætkartöflum og kóríanderdressingu með lesendum sínum. Rétturinn er fullkominn sumarmatur, einfaldur í gerð, litríkur og afar bragðgóður. Þá er einfalt að breyta honum örlítið til þess að hann verði vegan. 

Tortilla með kínóa, sætum kartöflum og kóríanderdressingu

90 gr kínóa
240 ml vatn
sjávarsalt
2 msk. kókosolía
1 stór sæt kartafla, afhýdd og skorin í litla bita
1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar
½ tsk. cumin (ath. ekki kúmen)
1 tsk. chilíduft
¼ tsk. hvítlauksduft (e. garlic powder)
1 poki spínat eða klettasalat, t.d. frá Hollt og gott
Tortillur

Síðan getur hver og einn sett á sína vefju.
Síðan getur hver og einn sett á sína vefju. Ljósmynd/Gulur, rauður, grænn og salt

Kóríanderdressing

1 búnt kóríander
1 dós sýrður rjómi
2 msk. safi úr ferskri límónu
1 hvítlauksrif

Aðferð

  1. Setjið kartöflurnar í ofnfast mót ásamt 1 msk. af kókosolíu og blandið vel saman. Eldið í ofni í um 15–20 mínútur eða þar til þær eru eldaðar í gegn en ekki of maukaðar. Takið síðan úr ofninum.
  2. Eldið kínóað á meðan með því að setja vatn, kínóa og klípu af sjávarsalti saman í pott og hitið að suðu. Setjið lok á pottinn og slökkvið á hellunni og leyfið að standa í um 10 mínútur án þess að taka lokið af. Þá ætti allt vatnið að vera farið og kínóað létt og gott.
  3. Steikið lauk á pönnu upp úr 1 msk. af kókosolíu. Bætið sætu kartöflunum saman við og kryddið með cumin, chilídufti, hvítlauksdufti og blandið vel saman.
  4. Gerið að lokum sósuna með því að setja öll hráefnin saman í matvinnsluvél og stilla á „pulse“ þar til allt hefur blandast vel saman.
  5. Hitið tortillurnar. Setjið síðan væna lúku af spínati á tortilluna, síðan sætar kartöflur, nokkrar matskeiðar af kínóa yfir það og toppið með kóríanderdressingu.
Einfalt er að breyta uppskriftinni örlítið og gera réttinn vegan.
Einfalt er að breyta uppskriftinni örlítið og gera réttinn vegan. Ljósmynd/Gulur, rauður, grænn og salt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert