Alvöru nautasteik

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 1 stk. nautalund lítil
» 15 ml olía
» 30 g smjör
» 2 greinar timijan (garðablóðberg)
» 1 geirar hvítlaukur
» Sveppasósa
» 10 stk. sveppir
» 40 g smjör
» 350 ml rjómi
» 40 g rjómaostur
» 15-20 ml hvítvínsedik
» Salt og pipar
» Ofnbakaður blaðlaukur
» 2 stk blaðlaukur
» 100 g vatn
» 50 g smjör
» 10 g kjúklingakraftur
» bragðbætt með hvítlaukur, steinselja, salt og pipar

Fyrir 4 - 6

Nautakjöt klikkar ekki blóðrautt eða gegnumsteikt, hver steikir það eftir sínum smekk. Meðlætið getur verið einfalt eins og smjörsteiktur laukur í rjómasósu með kryddsmjöri eða fínni útgáfa meistarakokksins.

Aðferð

Nautalundin er hreinsuð. Bundin upp, söltuð og pipruð. Steikt á mjög heitri pönnu með olíu og smjöri. Steikið vel á öllum hliðum (1-2 mín. á hverri hlið). Sett í ofnskúffu með garðablóðbergi, olíu og hvítlauk. Setjið loks í ofn á 160°C í 8-10 mín. Takið út og látið hvíla í 10 mín. Skorið í þykkar sneiðar og stráð salti í sárið.

Sveppirnir eru skornir í sneiðar. Steiktir á pönnunni sem nautið var steikt úr. Svo bætt rjóma og rjómaosti. Soðið niður um 1/3. Smakkað til með hvítvínsediki, salti og pipar.

Blaðlaukurinn er skolaður og skorinn í 6-8 cm langa bita. Allt nema steinseljan sett í eldfast mót. Bakað á 160°c í 25-35 mín. Velt upp úr saxaðri steinselju.

Þessi uppskrift er notuð í Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk

Meðlæti

Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk

Hráefni
» 300 g nautasteik
» 1 stk. laukur
» Olía til steikingar
» Maldon-salt og pipar
» 100 g smjör
» 1 stk. skalottlaukur
» 1 stk. hvítlauksgeirar
» lítið búnt graslaukur og eða steinselja
» 1/2 stk. sítróna, safi, 1 tsk sinnep
» Salt og pipar

Fyrir 2

Það verður ekki betra en íslenskt smjör með fersku kryddi - hvað þá ofan á safaríka mínútusteik.

Aðferð

Hitið ofninn í 180 gráður og bakið kartöfluna í 50 til 60 mínútur. Þerrið kjötið og látið það ná stofuhita á meðan kryddsmjörið er lagað. Hitið pönnuna vel með olíu og snöggsteikið steikina í 2 mín. á hvorri hlið en takið af rétt um það leyti sem steikin byrjar að svitna í gegnum steikarskorpuna. Leyfið steikinni að hvíla í um 10 mín.

Kryddsmjör
Skerið smátt skalottlauk, ásamt hvítlauk og graslauk og steinselju. Hrærið smjörið í skál eða hrærivél og kreistið safann úr sítrónunni út í. Bætið fínt skornum lauk og kryddjurtum út í skálina. Saltið og piprið eftir smekk. Rúllið upp í plastfilmu eða smjörpappír. Geymið í kæli eða frysti.

Lifrarpylsa Möggu

None
30.9.2010 Slátur er selt annað hvort sem „þrjú slátur“ eða „fimm slátur“. Sumar verslanir selja slátrið í stykkjatali. Þrjú slátur eiga að duga í um níu máltíðir fyrir fjögurra manna fjölskyldu ef allt hráefnið er notað og bæði gerð lifrapylsa og blóðmör. Meira »

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1099.jpeg>>
28.1.2010 Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér. Meira »

Pönnukökur fylltar með afgangskjöti og fíflasírópi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1068.jpeg>>
27.7.2009 Sniðugt er að nota afgangskjöt í góða máltíð með því að setja þær í pönnukökur með sallati og fleira góðgæti.  Meira »

Hangikjöt með uppstúfi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1103.jpeg>>
11.2.2010 Þjóðarréttur Íslendinga er að sjálfsögðu hangikjötið með öllu sínu ljúffenga meðlæti.  Meira »

Lambalifur með eplum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/10/04/image_1107.jpeg>>
30.9.2010 Lifur er hollur matur sem gott er að steikja með eplum eða kartöflumús. Gott er líka að bæta nýrum í réttinn.  Meira »

Íslensk kjötsúpa

None
21.6.2009 Veitingastaðir eru byrjaðir að setja gömlu kjötsúpuna í sparifötin með því að setja bleika meyra kjötbita í súpuna. Þetta er súpa sem allir þekkja, hver með sínu nefi, og er eina skilyrðið; íslenskt lambakjöt og íslenskt grænmeti Meira »

Hangikjötsþynnur með ferskum jurtum og sætum berjagljáa

None
31.8.2009 Hangikjötið er mikill hátíðarmatur. Hefðirnar á bak við verkun þess eru mjög fjölbreyttar og oftast aldagamlar. Margir neytendur hafa sterkar skoðanir á hangikjöti og vilja að það sé verkað á ákveðinn hátt eða upprunnið í ákveðnum landshluta. Meira »

Nautasnitsel með nýjum kartöflum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1096.jpeg>>
27.1.2010 Kjötsneiðar í brauðraspi finnst öllum gott og ekki skemmir að nota smá smjör til steikingar!  Meira »

Klassísk íslensk kjötsúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1091.jpeg>>
27.1.2010 Hér er gamla kjötsúpan gerð að hætti sannra matgæðinga sem vilja þetta eins og amma gerði súpuna.  Meira »

Steikt svínasíða með tómat, sinnep steiktum lauk og eplum og steiktum kartöflum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1065.jpeg>>
20.7.2009 Gamli stíllinn Svona var þetta gert, Mummi kann sitt fag  Meira »

Sallat á fjölbreytta vísu

None
6.7.2009 Að gera gott sallat er lítið mál. Íslenskt hráefni er úrvalsgott og með smá hugmyndaflugi er hægt að gera frábæra og létta máltíð á svipstundu. Meira »

Kartöflusallat með lauk, eplum og papriku

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1093.jpeg>>
27.1.2010 Kartöflusallat beint úr kæli eða úr kæliboxi kemur bragðlaukunum af stað, með góðu kjöti eða jafnvel eitt og sér.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar