Alíslensk eggjakaka

Hráefni
» 4-5 stk. egg
» 50 g kartöflur, skornar í bita
» 200 ml vatn
» 1 poki spínat
» salt og pipar
» 2 stk. sítrónusafi
» 1 rif hvítlaukur
» 60 ml mjólk
» 20 g blandaðar kryddjurtir, t.d. graslaukur, garðablóðberg eða steinselja
» Fjallagrös (má sleppa) smá af muldum fjallagrösum
» 10 g olía
» 100 g sýrður rjómi
» 30 g ostur

Fyrir 2 - 3

Það er hægt að gera góða máltíð úr eggjum en þau eru undirstaða í mörgum góðum uppskriftum. Ef það er til lítið í kælinum eða þú vilt hollan og orkuríkan málsverð þá er eggjakaka málið.

Aðferð

Eggjakaka með fjallagrösum, spínati og kartöflum.

Soðnar kaldar kartöflur settar í lítið vatn á pönnu ásamt spínati, sítrónusafa og hvítlauk. Sjóðið í 4 mín. Setjið smá olíu á pönnu, hrærið í eggjablöndunni, bætið í ögn af muldum fjallagrösum (má sleppa) og gerið þunnar eggjakökur, meira í stíl við pönnukökur.

Fyllið með kartöflum og spínati, setjið smá ost og rúllið upp. Hægt að gera nokkrar og svo hita upp í ofni. Skreytið með söxuðum graslauki og steinselju. Gott með sýrðum rjóma og fersku sallati.

Þessi uppskrift er notuð í Eggjakaka með skinku og osti

Meðlæti

Eggjakaka með skinku og osti

Hráefni
» 2 tsk. Ferskur graslaukur, saxaður
» 100 g skinka
» 100 g ostur til fyllingar
» 2 egg
» 1/2 stk. laukur
» 1/4 tsk. salt
» 1/8 tsk. nýmalaður svartur pipar
» 1 tsk. ósaltað smjör
» 1 tsk. Ólífuolía

Fyrir 1 - 2

Það er aldrei kreppa ef það er til egg í ísskápnum, holl veislumáltíð á 2 mínútum!

Aðferð

Setjið eggin, kryddjurtirnar, saltið og piparinn í skál og blandið saman.

Hitið olíuna og smjörið á pönnu við miðlungshita. Bætið í skinku og lauk.
Hellið eggjablöndunni út á pönnuna og hrærið í með gaffli þar til eggin byrja að setjast til.
Athugið hvort hliðarnar á eggjakökunni eru farnar að lyftast frá pönnunni.
Hristið pönnuna til að losa eggjakökuna. Bætið í rifnum ost, brjótið eggjakökuna til helminga og berið fram með sallati.

Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk

None
29.9.2009 Íslenska byggið er til margra hluta nýtilegt í eldamennskunni. Það er hollt og sérlega gott. Gunnar Karl Gíslason á Dilli sýnir okkur hvernig má slá í gegn með einföldum byggrétti. Meira »

Kjúklingasalat með malt-kryddlegi, berjum og villtum blómum

None
3.8.2009 Það er ekki svo langt síðan Íslendingar fóru að borða kjúkling og fyrir nokkrum áratugum var hann aðeins til hátíðarbrigða. Nú er kjúklingur á allra borðum, stundum oft í viku. Meira »

Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri með appelsínusósu

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1071.jpeg>>
3.8.2009 Það verður ekki betra en gljáð kjúklingalæri.  Meira »

Íslensk kjötsúpa

None
21.6.2009 Veitingastaðir eru byrjaðir að setja gömlu kjötsúpuna í sparifötin með því að setja bleika meyra kjötbita í súpuna. Þetta er súpa sem allir þekkja, hver með sínu nefi, og er eina skilyrðið; íslenskt lambakjöt og íslenskt grænmeti Meira »

Alvöru nautasteik

None
29.6.2009 Nautakjöt klikkar ekki blóðrautt eða gegnumsteikt, hver steikir það eftir sínum smekk. Meðlætið getur verið einfalt eins og smjörsteiktur laukur í rjómasósu með kryddsmjöri eða fínni útgáfa meistarakokksins. Meira »

Blóðmör Möggu

None
30.9.2010 Hver vill ekki eiga nóg af blóðmör og lifrarpylsu í frystikistunni áður en vetur gengur í garð? Einu slátri fylgir: Sviðahaus, 2 nýru, lifur, hjarta, mör, frosið blóð, vömb og keppur Meira »

Bakaðir lambaskankar í leirpotti

None
28.9.2009 Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.  Meira »

Nautaframhryggur með íslenskri kryddblöndu

None
2.11.2009 Árni Björn á svangur.is eldar hér skemmtilega og bragðgóða nautasteik  Meira »

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

None
14.9.2009 Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu. Meira »

Hrossalundir með kartöflufroðu og hvönn

None
7.9.2009 Hrossakjöt er náttúrulega meyrt og er fyrirtaks hráefni í margvíslega rétti. Það er ódýrt og eitt best geymda leyndarmál landbúnaðarins. Meira »

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1099.jpeg>>
28.1.2010 Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar