Eldum íslenskt
|
mbl
|
17. ágúst
Grænmetis og kókos súpa Tom Ka Kai
- Hráefni
- » 2 stk. rautt chilli
- » 2 stk. sítrónugras
- » 2 cm engifer
- » 2 stk. hvítur laukur
- » 2 dósir kókosmjólk
- » 400 ml vatn
- » 1 stk. paprika
- » 1/4 haus kínakál
- » 1 askja kirsuberjatómatar
- » 1 askja sveppir
- » 1 stk. lime
- » 100 ml olífuolía
- » Salt og pipar
Fyrir 4 - 6
Þessi súpa fer með íslenska grænmetið í ferð um heiminn, bragðmikil og fersk upplifun í matargerð.Aðferð
Skerið chili piparinn, sítrónugrasið, laukinn og engiferrótina gróft. Léttsteikið í potti með smá olíu. Bætið vatninu og kókosmjólkinni út í. Sjóðið niður um helming. Skerið paprikuna, sveppina og Kínakálið gróft niður og setjið út í súpuna ásamt tómötunum heilum. Sjóðið í 5 mín. Setjið olíuna í skál. Raspið lime börkinn út í olíuna. Kryddið loks súpuna með salti og pipar og kreistið lime safann út í súpuna. Hellið svo lime olíu út í súpuna til að fríska hana upp.Þessi uppskrift er notuð í Grænmetismauksúpa
Meðlæti
Grænmetismauksúpa
- Hráefni
- » 100 g rófur
- » 100 g gulrætur
- » 2 lítil hvítlauksrif
- » 50 g sellerí rót
- » 2 skallottulaukar
- » 1 lítil kartafla
- » grænmetiskraftur ef vill
- » 1/2 msk smjör
Fyrir 4
Mauksúpan er mjög góð því hægt er að gera hana úr alls konar grænmeti sem finnst í ísskápnum hjá þér. Hún er mjög næringarrík og seðjandi.Aðferð
Skerið allt grænmetið fínt. Skerið gulræturnar fjórar frekar þunnt til þess að þurfa ekki að sjóða súpuna mjög lengi. Setjið smjör í pott yfir meðal hita og hitið smjörið þar til það fer að freyða, bætið þá öllu grænmeti saman við.
Hellið þá vatninu saman við þannig að fljóti yfir allt grænmetið og 2 cm til. Sjóðið vel yfir meðal hita í ca 20-25 mínútur eða þar til gulræturnar eru meyrar. Hakkið með töfrasprota til að fá kremaða súpu. Skreytið eftir smekk hvers og eins.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1072/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















