Eldum íslenskt
|
mbl
|
24. ágúst
Létteldaður lax með blómkáli og sítrusávöxtum
- Hráefni
- » 200g lax
- » 4stk. bygg súrdeigsbrauð
- » 1 rif hvítlaukur
- » 20ml góð olía
- » Aldinkjöt af 1 appelsínu
- » 50g skorið utan af blómkáli
- » Salt og pipar
- » Nokkrar greinar extragon
Fyrir 2 - 4
Bændur hafa um árabil stundað silungsveiðar og víða er hægt að kaupa nýveiddan fisk beint frá býli. Sannir veiðimenn borða að sjálfsögðu það sem þeir veiða en hægt er að elda bæði lax og silung með afar fjölbreytum hætti.Aðferð
Flakið og beinhreinsið laxaflak (má vera með roðinu á en þá er gott að hreistra fiskinn). Grillið brauðið og laxinn í nokkrar mínútur. Nuddið hvítlauk á brauðið. Takið aldinkjötið úr appelsínunni og setjið á brauðið ásamt grillaða laxinum og ögn af olíu. Skreytið með extragon ásamt ögn af salti og pipar. Endið með að skera utan af blómkálshaus til að fá stökka áferð á brauðsneiðarnar.Þessi uppskrift er notuð í Nýveidd bleikja nammi namm!
Meðlæti
Nýveidd bleikja nammi namm!
- Hráefni
- » 300 g bleikja
- » 4 stk. birkigreinar
- » 1 rif hvítlaukur
- » 20 ml góð olía
- » Kalt smjör
- » Salt og pipar
- » Meðlæti að eigin vali
Fyrir 2 - 3
Það þarf ekki mikið að gera við nýja bleikju! Smá mjörklípa, salt og pipar er allt sem þarf til.Aðferð
Flakið og beinhreinsið bleikjuflak (má vera með roði á en þá er gott að hreistra fiskinn).
Steikið bleikjuflökin í nokkrar mínútur roðmeginn, bætið hvítlauk á pönnuna. Bætið smjöri á pönnuna ásamt ögn af salti og pipar og birkigreinum. Framreiðið með meðlæti að eigin vali. Það getur líka verið gott að heilgrilla bleikjuna með birkilaufum og vefja henni þá inn í álpappír.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1073/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















