Hangikjötsþynnur með ferskum jurtum og sætum berjagljáa

Hráefni
» 200 g hrátt hangikjöt
» 100 ml góð olía
» 1 stk. saxaður laukur
» 10 g capers
» 1 stk. soðið egg
» 1 stk. sítróna
» Blandaðar jurtir og salat
» Sætur berjagljái
» 200 g krækiber eða sólber
» 100 g sykur eða hunang
» 50 ml balsamikedik

Fyrir 4 - 8

Hangikjötið er mikill hátíðarmatur. Hefðirnar á bak við verkun þess eru mjög fjölbreyttar og oftast aldagamlar. Margir neytendur hafa sterkar skoðanir á hangikjöti og vilja að það sé verkað á ákveðinn hátt eða upprunnið í ákveðnum landshluta.

Aðferð

Skerið vöðvann í þunnar sneiðar. Gott ráð er að skera kjötið hálffrosið. Færið upp á disk eða fat. Saxið laukinn og soðnu eggjahvítuna, dreifið fallega yfir kjötið ásamt jurtum, capers, olíu og sallati. Kreistið örlítið af sítrónu yfir.

Hægsjóðið berin í sykrinum/hunanginu, sigtið og sjóðið niður um helming eða þar til vökvinn fer að þykkna. Kælið og gefið með kjötinu.

Þessi uppskrift er notuð í Hangikjöt með uppstúfi

Meðlæti

Hangikjöt með uppstúfi

Hráefni
» 1stk Hangilæri eða frampartur í rúllu
» Uppstúf
» 50 g smjör
» 50 g hveiti
» 1 l mjólk
» ½ tsk salt
» 1-2 msk sykur
» Ögn af hvítum pipar og ferskt mulið múskat

Fyrir 6 - 8

Þjóðarréttur Íslendinga er að sjálfsögðu hangikjötið með öllu sínu ljúffenga meðlæti.

Aðferð

Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp og slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp.

Látið ekki bullsjóða í pottinum. Látið kjötið kólna í pottinum undir loki.

Berið hangikjötið fram með uppstúfi, soðnum kartöflum, grænum Ora-baunum og laufabrauði.

Uppstúf

Bræðið smjör í potti og hrærið hveitinu saman við þannig að úr verði smjörbolla.

Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns jafningurinn verður kekkjalaus. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel í á meðan.

Kryddið með salti, sykri og pipar.

Lambakótilettur með kryddjurta-brauðskel

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1100.jpeg>>
28.1.2010 Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki. Meira »

Kartöflusallat með lauk, eplum og papriku

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1093.jpeg>>
27.1.2010 Kartöflusallat beint úr kæli eða úr kæliboxi kemur bragðlaukunum af stað, með góðu kjöti eða jafnvel eitt og sér.  Meira »

Hrossalundir með kartöflufroðu og hvönn

None
7.9.2009 Hrossakjöt er náttúrulega meyrt og er fyrirtaks hráefni í margvíslega rétti. Það er ódýrt og eitt best geymda leyndarmál landbúnaðarins. Meira »

Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1097.jpeg>>
28.1.2010 Íslenskt bygg er hollt og gott og ekki skemmir að það er oft lífrænt ræktað án allra aukaefna  Meira »

Folaldasneiðar með tómat og kryddolíu

None
19.10.2009 Folaldakjöt er meyrt og gott svo bráðnar í munni. Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í Hússtjórnarskólanum sýnir okkur fljótlega aðferð við eldun á folaldafile. Meira »

Alíslensk eggjakaka

None
13.7.2009 Það er hægt að gera góða máltíð úr eggjum en þau eru undirstaða í mörgum góðum uppskriftum. Ef það er til lítið í kælinum eða þú vilt hollan og orkuríkan málsverð þá er eggjakaka málið. Meira »

Lambalifur með eplum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/10/04/image_1107.jpeg>>
30.9.2010 Lifur er hollur matur sem gott er að steikja með eplum eða kartöflumús. Gott er líka að bæta nýrum í réttinn.  Meira »

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

None
14.9.2009 Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu. Meira »

Klassísk íslensk kjötsúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1091.jpeg>>
27.1.2010 Hér er gamla kjötsúpan gerð að hætti sannra matgæðinga sem vilja þetta eins og amma gerði súpuna.  Meira »

Íslensk kjötsúpa

None
21.6.2009 Veitingastaðir eru byrjaðir að setja gömlu kjötsúpuna í sparifötin með því að setja bleika meyra kjötbita í súpuna. Þetta er súpa sem allir þekkja, hver með sínu nefi, og er eina skilyrðið; íslenskt lambakjöt og íslenskt grænmeti Meira »

Pönnukökur fylltar með afgangskjöti og fíflasírópi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1068.jpeg>>
27.7.2009 Sniðugt er að nota afgangskjöt í góða máltíð með því að setja þær í pönnukökur með sallati og fleira góðgæti.  Meira »

Nýveidd bleikja nammi namm!

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1101.jpeg>>
10.2.2010 Það þarf ekki mikið að gera við nýja bleikju! Smá mjörklípa, salt og pipar er allt sem þarf til.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar