Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 600 g nautalund
» 400 g kartöflusmælki
» 1 stk. lárpera (avókadó)
» 1 dós grísk jógúrt
» 1/2 búnt graslaukur
» 4 stk. vorlaukur
» 2 rif hvítlaukur
» 100 g pankó brauðraspur
» 1 poki wasabihnetur
» salt og pipar
» olía til steikingar
» smjör til steikingar

Fyrir 4

Nautasnitsel klikkar ekki og hvað þá kokkurinn Hrefna Sætran og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans sem ætla að sýna okkur hvernig á að elda íslenskt nautakjöt.

Aðferð

Snyrtið nautalundina og skerið hana í sneiðar. Setjið pankó brauðrasp í skál. Merjið wasabi-hneturnar í morteli og blandið saman við brauðraspið. Kryddið með salti og pipar. Hitið pönnu með olíu. Veltið sneiðunum upp úr raspblöndunni og setjið á pönnuna. Steikið í 4 mín á hvorri hlið. Bæti smjörklípu út á pönnuna og slökkvið undir.

Kartöflusallat með smælki
Byrjið á því að sjóða kartöflurnar í saltvatni. Raspið eða pressið hvítlauksrifin og setjið í skál ásamt gríska jógúrtinu. Skrælið lárperuna og skerið í litla bita. Saxið graslaukinn fínt niður og vorlaukinn. Bætið út í jógúrtblönduna. Skerið kartöflurnar í helming og bætið út í. Kryddið með salt og pipar.

Þessi uppskrift er notuð í Nautasnitsel með nýjum kartöflum

Meðlæti

Nautasnitsel með nýjum kartöflum

Hráefni
» 1 kg nautasnitsel
» 1 egg
» Smjör/olía
» Salt
» Pipar
» Brauðrasp

Fyrir 4 - 6

Kjötsneiðar í brauðraspi finnst öllum gott og ekki skemmir að nota smá smjör til steikingar!

Aðferð

Berjið kjötsneiðarnar með kjöthamri ef kjötkaupmaðurinn er ekki búinn að því. Þeytið hrátt egg með gaffli. Kryddið eggið með salti og pipar og látið eggjahræruna þekja kjötsneiðarnar. Veltið svo kjötsneiðunum upp úr brauðraspi. Steikið snitselið á pönnu og berið fram með kartöflum og grænmetið að eigin vali.

Seðjandi svínasíða

None
20.7.2009 Íslensk svínarækt hefur þróast mikið á síðustu áratugum og úrvalssvínakjöt er nú í boði allt árið. Neysluvenjur neytenda hafa breyst og er nú svo komið að svínakjöt er einna vinsælasta kjöttegundin enda hagkvæm í innkaupum og spennandi í ýmsa rétti. Meira »

Kjötsúpa með nautakjöti

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1102.jpeg>>
10.2.2010 Náttúruleg, heit og holl, upplagt að elda daginn áður. Þessi uppskrift hefur hlotið mjög góða dóma   Meira »

Klassísk íslensk kjötsúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1091.jpeg>>
27.1.2010 Hér er gamla kjötsúpan gerð að hætti sannra matgæðinga sem vilja þetta eins og amma gerði súpuna.  Meira »

Lambakótilettur með kryddjurta-brauðskel

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1100.jpeg>>
28.1.2010 Kótilettur eins og þær voru hjá mömmu og ömmu á sunnudögum hér áður fyrr - velt upp úr raspi og síðan pönnusteiktar í smjörlíki. Meira »

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1099.jpeg>>
28.1.2010 Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér. Meira »

Bakaðir lambaskankar í leirpotti

None
28.9.2009 Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.  Meira »

Pönnukökur fylltar með afgangskjöti og fíflasírópi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1068.jpeg>>
27.7.2009 Sniðugt er að nota afgangskjöt í góða máltíð með því að setja þær í pönnukökur með sallati og fleira góðgæti.  Meira »

Kjúklingur í karrý

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1082.jpeg>>
19.10.2009 Gamli stíllinn Hægt er að nota kjúklingabringur í staðinn fyrir heila kjúklinga ef maður er að elda fyrir fáa.  Meira »

Sallat á fjölbreytta vísu

None
6.7.2009 Að gera gott sallat er lítið mál. Íslenskt hráefni er úrvalsgott og með smá hugmyndaflugi er hægt að gera frábæra og létta máltíð á svipstundu. Meira »

Nýveidd bleikja nammi namm!

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1101.jpeg>>
10.2.2010 Það þarf ekki mikið að gera við nýja bleikju! Smá mjörklípa, salt og pipar er allt sem þarf til.  Meira »

Pönnusteiktar hunangsgljáðar svínakótelettur með grænmetisblöndu (ragout)

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1104.jpeg>>
11.2.2010 Svínakjöt er gott og auðvelt að elda. Það tekur vel við skemmtilegum kryddum en hér beitum við asískum brögðum á svínakótelettur. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar