Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 200 g bankabygg
» 250 g blandað nýtt grænmeti
» 1/2 ltr. grænmetiskraftur
» ½ stk. laukur
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1 búnt ferskt kóríander
» blandaðar kryddjurtir
» 1/2 glas þurrt hvítvín
» 2 msk jómfrúarólífuolía
» 20 g smjör
» salt og hvítur pipar
» 100 g rækjur
» 1 dós skyr

Fyrir 2 - 4

Íslenska byggið er til margra hluta nýtilegt í eldamennskunni. Það er hollt og sérlega gott. Gunnar Karl Gíslason á Dilli sýnir okkur hvernig má slá í gegn með einföldum byggrétti.

Aðferð

Leggið bankabyggið í bleyti í 6-8 tíma. Skolið grænmetið og skerið í bita. Saxið lauk smátt, hvítlauk og kóríanderlauf. Hitið olíuna og mýkið laukinn og kóríander í henni. Síið vatnið vel frá bankabygginu og bætið út á pönnuna og ristið ásamt grænmetinu í 3-4 mín. Hellið víni saman við og látið gufa upp. Smakkið til með saltinu. Hellið tveimur ausum af sjóðheitum kraftinum út á pönnuna og látið gufa upp á milli þess sem vökva er bætt í. Þegar byggið hefur kraumað í 10 mín. bætið kryddjurtum saman við og sjóðið áfram í um 5 mínútur. Þegar byggið er soðið, bætið þá smjörklípu út á pönnu og blandið vel saman. Kryddið með ferskum pipar rétt áður en rétturinn er borinn fram og skreytið með ferskum birkilaufum. Látið meðlæti ofan á byggið, má nota það sem er við hendina hverju sinni.

Sósan er samsett úr skyri, rjóma, ögn af góðu ediku ásamt salti og pipar. 

Þessi uppskrift er notuð í Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli

Meðlæti

Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli

Hráefni
» 1 dl lífrænt ræktað bygg, t.d. frá Vallanesi á Fljótsdalshéraði
» 3 dl vatn
» Vorgrænmeti að vali hvers og eins (smágulrætur, vorlaukur, aspas)
» Smátt saxað grænmeti að vali hvers og eins (gulrætur, vorlaukur, aspas)
» Repjuolía
» Salt
» Sítrónusafi

Fyrir 2 - 4

Íslenskt bygg er hollt og gott og ekki skemmir að það er oft lífrænt ræktað án allra aukaefna

Aðferð

Sjóðið byggið í vatninu í 40 – 50 mínútur. Hellið öllu aukavatni af og setjið smátt saxað grænmetið saman við. Fáið góðan hita í byggið og kryddið með salti og sítrónusafa. Hitið heila grænmetið í öðrum potti, kryddið með salti og gljáið með repjuolíunni. Raðið öllu á disk, og skreytið með villtum íslenskum kerfli.

Nautaframhryggur með íslenskri kryddblöndu

None
2.11.2009 Árni Björn á svangur.is eldar hér skemmtilega og bragðgóða nautasteik  Meira »

Grænmetismauksúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1095.jpeg>>
27.1.2010 Mauksúpan er mjög góð því hægt er að gera hana úr alls konar grænmeti sem finnst í ísskápnum hjá þér. Hún er mjög næringarrík og seðjandi. Meira »

Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati

None
21.9.2009 Nautasnitsel klikkar ekki og hvað þá kokkurinn Hrefna Sætran og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans sem ætla að sýna okkur hvernig á að elda íslenskt nautakjöt. Meira »

Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri með appelsínusósu

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1071.jpeg>>
3.8.2009 Það verður ekki betra en gljáð kjúklingalæri.  Meira »

Hjörtu með rauðum chili, sveppum og engifer

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/10/04/image_1106.jpeg>>
30.9.2010 Hjörtu er mjög góð og þarf annað hvort að moðsjóða eða borða bleik.   Meira »

Pönnukökur fylltar með afgangskjöti og fíflasírópi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1068.jpeg>>
27.7.2009 Sniðugt er að nota afgangskjöt í góða máltíð með því að setja þær í pönnukökur með sallati og fleira góðgæti.  Meira »

Íslensk kjötsúpa

None
21.6.2009 Veitingastaðir eru byrjaðir að setja gömlu kjötsúpuna í sparifötin með því að setja bleika meyra kjötbita í súpuna. Þetta er súpa sem allir þekkja, hver með sínu nefi, og er eina skilyrðið; íslenskt lambakjöt og íslenskt grænmeti Meira »

Lambalifur með eplum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/10/04/image_1107.jpeg>>
30.9.2010 Lifur er hollur matur sem gott er að steikja með eplum eða kartöflumús. Gott er líka að bæta nýrum í réttinn.  Meira »

Grænmetis og kókos súpa Tom Ka Kai

None
17.8.2009 Þessi súpa fer með íslenska grænmetið í ferð um heiminn, bragðmikil og fersk upplifun í matargerð.  Meira »

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

None
14.9.2009 Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu. Meira »

Sallat á fjölbreytta vísu

None
6.7.2009 Að gera gott sallat er lítið mál. Íslenskt hráefni er úrvalsgott og með smá hugmyndaflugi er hægt að gera frábæra og létta máltíð á svipstundu. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar