Eldum íslenskt
|
mbl
|
19. október
Folaldasneiðar með tómat og kryddolíu
- Hráefni
- » 500g folaldakjöt
- » 1stk. hvítlauksrif
- » 2 tsk oregano
- » 50ml olía
- » 1stk. tómatpure
- » 1tsk paprikuduft
- » 1,5 stk. laukur
- » Blandað grænmeti sem er við höndina tildæmis, sveppir, papríka og blómkál
- » 1 tsk timian
Fyrir 3 - 4
Folaldakjöt er meyrt og gott svo bráðnar í munni. Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í Hússtjórnarskólanum sýnir okkur fljótlega aðferð við eldun á folaldafile.Aðferð
Laukurinn er skorinn niður í sneiðar og léttsteiktur á pönnu. Kryddolía hræð saman með hvítlauk, paprikudufti, oregano, timian og salti. Folaldasneiðarnar eru penslaðar með kryddolíunni og steiktar í 7-10 mín. á hvorri hlið. Sósan löguð á pönnunni með tómat og smá vatni.
Berið fram með soðnum kartöflum og ristuðu grænmeti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1083/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















