Eldum íslenskt
|
mbl
|
2. nóvember
Nautaframhryggur með íslenskri kryddblöndu
- Hráefni
- » 1 stk. nautahryggur
- » 20 g einiber
- » 20 g pipar
- » 20 g salt
- » 30 g þurrkaðir íslenskir sveppir
- » 10 g þurrkað íslenskt blóðberg
- » 10 g birki
- » 10 g hvönn
- » -
- » Íslensk útgáfa af béarnaise-sósu
- » 3 stk. eggjarauður
- » 1 msk dijon sinnep
- » 250 ml góð olía (eða smjör)
- » 5 ml hvítvínsedik
- » safi af 1 sítrónu
- » söxuð hvönn (eða extragon)
- » salt og pipar
Fyrir 4 - 6
Árni Björn á svangur.is eldar hér skemmtilega og bragðgóða nautasteikAðferð
Nuddið kjötið með kryddblöndunni, brúnið á háum hita í nokkra mínútur og setjið á álpappír eða í álbakka. Bætið við ögn af bjór eða malti til að hald kjötinu röku.Látið kjötið malla við vægan hita í um 30 mín. eða eftir stærð steikarinnar og smekk manna. Gott er að nota kjöthitamæli en þegar kjötið er miðlungssteikt er það um 60°C í kjarna.
Íslensk útgáfa af béarnaise-sósu
Eggin sett í hrærivél með sinnepi, olíunni helt rólega út í og allt kryddað til. Þegar olía er notuð í stað smjörs er hægt að geyma sósuna í kæli án þess að hún harðni.
© Eldum Íslenskt
Þessi uppskrift er notuð í Kjötsúpa með nautakjöti
Meðlæti
Kjötsúpa með nautakjöti
- Hráefni
- » 600 gr nautagúllas
- » 1 laukur saxaður
- » 1 búnt steinselja
- » 2 msk tómtpure
- » 1 tsk timian, 2 stk. lárviðarlauf
- » 1/2 tsk salt, svartur pipar
- » 8 dl kjötsoð- (vatn og nautakraftur)
- » blandað grænmeti, gulrætur, blaðlaukur, kartöflur, sveppir
- » 50 gr beikon
- » 2 hvítlauksrif, pressuð
Fyrir 4 - 6
Náttúruleg, heit og holl, upplagt að elda daginn áður. Þessi uppskrift hefur hlotið mjög góða dómaAðferð
Kjötið skorið í litla bita og steikt lítilsháttar og bætt í súpuna. Sjóðið í alls 90 mín. Ausið súpunni upp í fallegar skálar fyrir hvern og einn og berið fram með toppi úr fitulitlum sýrðum rjóma og góðu grófu brauði. Súpan er mjög góð daginn eftir og einnig daginn þar á eftir!
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1085/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















