Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk
- Hráefni
- » 300 g nautasteik
- » 1 stk. laukur
- » Olía til steikingar
- » Maldon-salt og pipar
- » 100 g smjör
- » 1 stk. skalottlaukur
- » 1 stk. hvítlauksgeirar
- » lítið búnt graslaukur og eða steinselja
- » 1/2 stk. sítróna, safi, 1 tsk sinnep
- » Salt og pipar
Fyrir 2
Það verður ekki betra en íslenskt smjör með fersku kryddi - hvað þá ofan á safaríka mínútusteik.Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráður og bakið kartöfluna í 50 til 60 mínútur. Þerrið kjötið og látið það ná stofuhita á meðan kryddsmjörið er lagað. Hitið pönnuna vel með olíu og snöggsteikið steikina í 2 mín. á hvorri hlið en takið af rétt um það leyti sem steikin byrjar að svitna í gegnum steikarskorpuna. Leyfið steikinni að hvíla í um 10 mín.
Kryddsmjör
Skerið smátt skalottlauk, ásamt hvítlauk og graslauk og steinselju. Hrærið smjörið í skál eða hrærivél og kreistið safann úr sítrónunni út í. Bætið fínt skornum lauk og kryddjurtum út í skálina. Saltið og piprið eftir smekk. Rúllið upp í plastfilmu eða smjörpappír. Geymið í kæli eða frysti.
Þessi uppskrift er notuð í Alvöru nautasteik
Meðlæti
Alvöru nautasteik
- Hráefni
- » 1 stk. nautalund lítil
- » 15 ml olía
- » 30 g smjör
- » 2 greinar timijan (garðablóðberg)
- » 1 geirar hvítlaukur
- » Sveppasósa
- » 10 stk. sveppir
- » 40 g smjör
- » 350 ml rjómi
- » 40 g rjómaostur
- » 15-20 ml hvítvínsedik
- » Salt og pipar
- » Ofnbakaður blaðlaukur
- » 2 stk blaðlaukur
- » 100 g vatn
- » 50 g smjör
- » 10 g kjúklingakraftur
- » bragðbætt með hvítlaukur, steinselja, salt og pipar
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Nautakjöt klikkar ekki blóðrautt eða gegnumsteikt, hver steikir það eftir sínum smekk. Meðlætið getur verið einfalt eins og smjörsteiktur laukur í rjómasósu með kryddsmjöri eða fínni útgáfa meistarakokksins.Aðferð
Nautalundin er hreinsuð. Bundin upp, söltuð og pipruð. Steikt á mjög heitri pönnu með olíu og smjöri. Steikið vel á öllum hliðum (1-2 mín. á hverri hlið). Sett í ofnskúffu með garðablóðbergi, olíu og hvítlauk. Setjið loks í ofn á 160°C í 8-10 mín. Takið út og látið hvíla í 10 mín. Skorið í þykkar sneiðar og stráð salti í sárið.Sveppirnir eru skornir í sneiðar. Steiktir á pönnunni sem nautið var steikt úr. Svo bætt rjóma og rjómaosti. Soðið niður um 1/3. Smakkað til með hvítvínsediki, salti og pipar.
Blaðlaukurinn er skolaður og skorinn í 6-8 cm langa bita. Allt nema steinseljan sett í eldfast mót. Bakað á 160°c í 25-35 mín. Velt upp úr saxaðri steinselju.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





















