Eggjakaka með skinku og osti

mynd með uppskrift
Hráefni
» 2 tsk. Ferskur graslaukur, saxaður
» 100 g skinka
» 100 g ostur til fyllingar
» 2 egg
» 1/2 stk. laukur
» 1/4 tsk. salt
» 1/8 tsk. nýmalaður svartur pipar
» 1 tsk. ósaltað smjör
» 1 tsk. Ólífuolía

Fyrir 1 - 2

Það er aldrei kreppa ef það er til egg í ísskápnum, holl veislumáltíð á 2 mínútum!

Aðferð

Setjið eggin, kryddjurtirnar, saltið og piparinn í skál og blandið saman.

Hitið olíuna og smjörið á pönnu við miðlungshita. Bætið í skinku og lauk.
Hellið eggjablöndunni út á pönnuna og hrærið í með gaffli þar til eggin byrja að setjast til.
Athugið hvort hliðarnar á eggjakökunni eru farnar að lyftast frá pönnunni.
Hristið pönnuna til að losa eggjakökuna. Bætið í rifnum ost, brjótið eggjakökuna til helminga og berið fram með sallati.

Þessi uppskrift er notuð í Alíslensk eggjakaka

Meðlæti

Alíslensk eggjakaka

Hráefni
» 4-5 stk. egg
» 50 g kartöflur, skornar í bita
» 200 ml vatn
» 1 poki spínat
» salt og pipar
» 2 stk. sítrónusafi
» 1 rif hvítlaukur
» 60 ml mjólk
» 20 g blandaðar kryddjurtir, t.d. graslaukur, garðablóðberg eða steinselja
» Fjallagrös (má sleppa) smá af muldum fjallagrösum
» 10 g olía
» 100 g sýrður rjómi
» 30 g ostur

Fyrir 2 - 3 | skoða myndskeið

Það er hægt að gera góða máltíð úr eggjum en þau eru undirstaða í mörgum góðum uppskriftum. Ef það er til lítið í kælinum eða þú vilt hollan og orkuríkan málsverð þá er eggjakaka málið.

Aðferð

Eggjakaka með fjallagrösum, spínati og kartöflum.

Soðnar kaldar kartöflur settar í lítið vatn á pönnu ásamt spínati, sítrónusafa og hvítlauk. Sjóðið í 4 mín. Setjið smá olíu á pönnu, hrærið í eggjablöndunni, bætið í ögn af muldum fjallagrösum (má sleppa) og gerið þunnar eggjakökur, meira í stíl við pönnukökur.

Fyllið með kartöflum og spínati, setjið smá ost og rúllið upp. Hægt að gera nokkrar og svo hita upp í ofni. Skreytið með söxuðum graslauki og steinselju. Gott með sýrðum rjóma og fersku sallati.

Klassísk íslensk kjötsúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1091.jpeg>>
27.1.2010 Hér er gamla kjötsúpan gerð að hætti sannra matgæðinga sem vilja þetta eins og amma gerði súpuna.  Meira »

Fyllt svínalund með osti og döðlum

None
26.10.2009 Svínalundir er auðvelt að fylla með ýmsu góðgæti, s.s. þurrkuðum ávöxtum og osti.   Meira »

Kjúklingasalat með malt-kryddlegi, berjum og villtum blómum

None
3.8.2009 Það er ekki svo langt síðan Íslendingar fóru að borða kjúkling og fyrir nokkrum áratugum var hann aðeins til hátíðarbrigða. Nú er kjúklingur á allra borðum, stundum oft í viku. Meira »

Bakaðir lambaskankar í leirpotti

None
28.9.2009 Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.  Meira »

Kjötsúpa með nautakjöti

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1102.jpeg>>
10.2.2010 Náttúruleg, heit og holl, upplagt að elda daginn áður. Þessi uppskrift hefur hlotið mjög góða dóma   Meira »

Létteldaður lax með blómkáli og sítrusávöxtum

None
24.8.2009 Bændur hafa um árabil stundað silungsveiðar og víða er hægt að kaupa nýveiddan fisk beint frá býli. Sannir veiðimenn borða að sjálfsögðu það sem þeir veiða en hægt er að elda bæði lax og silung með afar fjölbreytum hætti. Meira »

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

None
14.9.2009 Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu. Meira »

Steikt svínasíða með tómat, sinnep steiktum lauk og eplum og steiktum kartöflum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1065.jpeg>>
20.7.2009 Gamli stíllinn Svona var þetta gert, Mummi kann sitt fag  Meira »

Ofnsteikt lambalæri

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1098.jpeg>>
28.1.2010 Sunnudaga hjá ömmu í gamla daga má kannski endurtaka einu sinni í mánuði - en ekki moðsteikja lambalærið í margar klukkustundir ef þið viljið bleikan vöðva! Meira »

Snyrtar lambakótilettur með fersku bragði

None
3.8.2009 Lambakótilettur er mjög þekktur íslenskur réttur en þær voru gjarnan teknar með kaldar í útilegu áður en grillmenningin hóf innreið sína. Fólk ætti endilega að prófa þá rétti sem eru sýndir í þessum þætti - bæði hefbundnar kótilettur í raspi og nýstárlegri eldunaraðferð. Meira »

Heilsteiktur lambaskrokkur

None
27.7.2009 Það er ævintýri líkast að heilsteikja kjötskrokka í góðu veðri með vinum og kunningjum. Heila kjötskrokka er hægt að fá með fyrirvara í flestum kjötborðum. Einn meðal lambaskrokkur er hæfilegur fyrir 25-30 manna veislu. Meira »

Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1092.jpeg>>
27.1.2010 Það verður ekki betra en íslenskt smjör með fersku kryddi - hvað þá ofan á safaríka mínútusteik.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar