Nautasnitsel með nýjum kartöflum
- Hráefni
- » 1 kg nautasnitsel
- » 1 egg
- » Smjör/olía
- » Salt
- » Pipar
- » Brauðrasp
Fyrir 4 - 6
Kjötsneiðar í brauðraspi finnst öllum gott og ekki skemmir að nota smá smjör til steikingar!Aðferð
Berjið kjötsneiðarnar með kjöthamri ef kjötkaupmaðurinn er ekki búinn að því. Þeytið hrátt egg með gaffli. Kryddið eggið með salti og pipar og látið eggjahræruna þekja kjötsneiðarnar. Veltið svo kjötsneiðunum upp úr brauðraspi. Steikið snitselið á pönnu og berið fram með kartöflum og grænmetið að eigin vali.
Þessi uppskrift er notuð í Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati
Meðlæti
Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati
- Hráefni
- » 600 g nautalund
- » 400 g kartöflusmælki
- » 1 stk. lárpera (avókadó)
- » 1 dós grísk jógúrt
- » 1/2 búnt graslaukur
- » 4 stk. vorlaukur
- » 2 rif hvítlaukur
- » 100 g pankó brauðraspur
- » 1 poki wasabihnetur
- » salt og pipar
- » olía til steikingar
- » smjör til steikingar
Fyrir 4 | skoða myndskeið
Nautasnitsel klikkar ekki og hvað þá kokkurinn Hrefna Sætran og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans sem ætla að sýna okkur hvernig á að elda íslenskt nautakjöt.Aðferð
Snyrtið nautalundina og skerið hana í sneiðar. Setjið pankó brauðrasp í skál. Merjið wasabi-hneturnar í morteli og blandið saman við brauðraspið. Kryddið með salti og pipar. Hitið pönnu með olíu. Veltið sneiðunum upp úr raspblöndunni og setjið á pönnuna. Steikið í 4 mín á hvorri hlið. Bæti smjörklípu út á pönnuna og slökkvið undir.
Kartöflusallat með smælki
Byrjið á því að sjóða kartöflurnar í saltvatni. Raspið eða pressið hvítlauksrifin og setjið í skál ásamt gríska jógúrtinu. Skrælið lárperuna og skerið í litla bita. Saxið graslaukinn fínt niður og vorlaukinn. Bætið út í jógúrtblönduna. Skerið kartöflurnar í helming og bætið út í. Kryddið með salt og pipar.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum






















