Ofnsteikt lambalæri
- Hráefni
- » 1stk. Lambalæri
- » Jógúrtsósa
- » 2 dósir Hreint Óskajógúrt
- » ½ geiri marinn hvítlaukur
- » 1 msk sykur
- » 1 stk. lime börkur
- » ½ stk. lime safi
- » ½ búnt saxað kóriander
- » 1 tsk salt
Fyrir 6 - 8
Sunnudaga hjá ömmu í gamla daga má kannski endurtaka einu sinni í mánuði - en ekki moðsteikja lambalærið í margar klukkustundir ef þið viljið bleikan vöðva!Aðferð
Við mælum með til að halda kjötsafa og gæðum í hæsta gæðaflokki að strá yfir lærið salti 10 mín fyrir ofn bökun þannig að allir hlutar lærisins fá hóflega áferð af salti.
Best er að setja læri inn í 180’c ofn í 10-15 mín og lækka niður í 110’c til að kjötið fái væga ofnbökun í 45-60 mín og svo er gott setja kjötið undir grillið í 5 mín. Látið svo kjötið jafna sig í 10 mín við stofuhita fyrir skurð.
Miðlungssteikt er 60’c í kjarna (hita) eftir að kjötið hefur látið hvíla.
Allt kjöt er gott að láta liggja í ólífuolíu með ferskum kryddtegundum. Þannig næst full meyrnun á sama tíma og kjötið fær gott kryddbragð. Meyrnun í ólífuolíu gefur frábæran grunn til að kjötið verði sem best við náttúrulegar aðstæður án salts.
Fyrir steikingu er stráð sjáfarsalti eða öðru góðu salti yfir kjötið til að samræma meyran bragðgóðan vöðvann við hóflegt saltbragð og kryddkeim.
Leggið lærið í marineringu í 1 dl. ólífuolíu, ½ búnt timjan, ½ búnt rósmarin og hvítlauk (kraminn undir hnífsoddi). Látið marinerast yfir nótt í kæliskáp.
Jógúrtsósa hentar vel sem bragðauki.
Gott er að bera fram grillaða kartöflubáta með steikinni.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum






















