Hangikjöt með uppstúfi

mynd með uppskrift
Hráefni
» 1stk Hangilæri eða frampartur í rúllu
» Uppstúf
» 50 g smjör
» 50 g hveiti
» 1 l mjólk
» ½ tsk salt
» 1-2 msk sykur
» Ögn af hvítum pipar og ferskt mulið múskat

Fyrir 6 - 8

Þjóðarréttur Íslendinga er að sjálfsögðu hangikjötið með öllu sínu ljúffenga meðlæti.

Aðferð

Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp og slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp.

Látið ekki bullsjóða í pottinum. Látið kjötið kólna í pottinum undir loki.

Berið hangikjötið fram með uppstúfi, soðnum kartöflum, grænum Ora-baunum og laufabrauði.

Uppstúf

Bræðið smjör í potti og hrærið hveitinu saman við þannig að úr verði smjörbolla.

Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns jafningurinn verður kekkjalaus. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel í á meðan.

Kryddið með salti, sykri og pipar.

Þessi uppskrift er notuð í Hangikjötsþynnur með ferskum jurtum og sætum berjagljáa

Meðlæti

Hangikjötsþynnur með ferskum jurtum og sætum berjagljáa

Hráefni
» 200 g hrátt hangikjöt
» 100 ml góð olía
» 1 stk. saxaður laukur
» 10 g capers
» 1 stk. soðið egg
» 1 stk. sítróna
» Blandaðar jurtir og salat
» Sætur berjagljái
» 200 g krækiber eða sólber
» 100 g sykur eða hunang
» 50 ml balsamikedik

Fyrir 4 - 8 | skoða myndskeið

Hangikjötið er mikill hátíðarmatur. Hefðirnar á bak við verkun þess eru mjög fjölbreyttar og oftast aldagamlar. Margir neytendur hafa sterkar skoðanir á hangikjöti og vilja að það sé verkað á ákveðinn hátt eða upprunnið í ákveðnum landshluta.

Aðferð

Skerið vöðvann í þunnar sneiðar. Gott ráð er að skera kjötið hálffrosið. Færið upp á disk eða fat. Saxið laukinn og soðnu eggjahvítuna, dreifið fallega yfir kjötið ásamt jurtum, capers, olíu og sallati. Kreistið örlítið af sítrónu yfir.

Hægsjóðið berin í sykrinum/hunanginu, sigtið og sjóðið niður um helming eða þar til vökvinn fer að þykkna. Kælið og gefið með kjötinu.

Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1092.jpeg>>
27.1.2010 Það verður ekki betra en íslenskt smjör með fersku kryddi - hvað þá ofan á safaríka mínútusteik.  Meira »

Eggjakaka með skinku og osti

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1094.jpeg>>
27.1.2010 Það er aldrei kreppa ef það er til egg í ísskápnum, holl veislumáltíð á 2 mínútum!  Meira »

Hrossalundir með kartöflufroðu og hvönn

None
7.9.2009 Hrossakjöt er náttúrulega meyrt og er fyrirtaks hráefni í margvíslega rétti. Það er ódýrt og eitt best geymda leyndarmál landbúnaðarins. Meira »

Heilsteiktur lambaskrokkur

None
27.7.2009 Það er ævintýri líkast að heilsteikja kjötskrokka í góðu veðri með vinum og kunningjum. Heila kjötskrokka er hægt að fá með fyrirvara í flestum kjötborðum. Einn meðal lambaskrokkur er hæfilegur fyrir 25-30 manna veislu. Meira »

Kjúklingur í karrý

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1082.jpeg>>
19.10.2009 Gamli stíllinn Hægt er að nota kjúklingabringur í staðinn fyrir heila kjúklinga ef maður er að elda fyrir fáa.  Meira »

Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk

None
29.9.2009 Íslenska byggið er til margra hluta nýtilegt í eldamennskunni. Það er hollt og sérlega gott. Gunnar Karl Gíslason á Dilli sýnir okkur hvernig má slá í gegn með einföldum byggrétti. Meira »

Nautaframhryggur með íslenskri kryddblöndu

None
2.11.2009 Árni Björn á svangur.is eldar hér skemmtilega og bragðgóða nautasteik  Meira »

Ofnsteikt lambalæri

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1098.jpeg>>
28.1.2010 Sunnudaga hjá ömmu í gamla daga má kannski endurtaka einu sinni í mánuði - en ekki moðsteikja lambalærið í margar klukkustundir ef þið viljið bleikan vöðva! Meira »

Kjúklingasalat með malt-kryddlegi, berjum og villtum blómum

None
3.8.2009 Það er ekki svo langt síðan Íslendingar fóru að borða kjúkling og fyrir nokkrum áratugum var hann aðeins til hátíðarbrigða. Nú er kjúklingur á allra borðum, stundum oft í viku. Meira »

Kjúklingalæri í heimalöguðu karrý

None
12.10.2009 Bragðgóður kjúklingur með karrý klikkar ekki!  Meira »

Klassísk íslensk kjötsúpa

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1091.jpeg>>
27.1.2010 Hér er gamla kjötsúpan gerð að hætti sannra matgæðinga sem vilja þetta eins og amma gerði súpuna.  Meira »

Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1097.jpeg>>
28.1.2010 Íslenskt bygg er hollt og gott og ekki skemmir að það er oft lífrænt ræktað án allra aukaefna  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar