Pönnusteiktar hunangsgljáðar svínakótelettur með grænmetisblöndu (ragout)

mynd með uppskrift
Hráefni
» 1 kg svínakótilettur
» salt og nýmalaður pipar
» hunang til penslunar
» Grænmetsblanda (ragut)
» 1/2 stk. Blómkál
» ½ stk. Brokkál
» 1 stk. laukur, 1 stk. sellerý
» 1/2 pakki. Sveppir
» 1 stk. papríka, 2 msk. matarolía
» 1/2 sítróna

Fyrir 3 - 4

Svínakjöt er gott og auðvelt að elda. Það tekur vel við skemmtilegum kryddum en hér beitum við asískum brögðum á svínakótelettur.

Aðferð

Allt grænmeti er skorið niður og því blandað saman. Blandið safanum úr sítrónunni og matarolíunni og léttsteikið á pönnu. Svínakótiletturnar eru penslaðar með hunangi og kryddaðar með salti. Steikið í 7-10 mín. á hvorri hlið.

Þessi uppskrift er notuð í Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

Meðlæti

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

Hráefni
» 800 g svínakótilettur
» Kryddlögur
» 100 ml maltöl
» 50 ml Sweet soja sósa
» 30 ml sesamolía
» 1 stk. kjarnhreinsaður eldpipar (chili)
» safi og börkur af ½ lime
» nokkur lauf kóríander
» Skyrbernes
» 2 stk. eggjarauður
» 1 msk Dijonsinnep
» 100 ml góð bragðlítil olía
» 250 ml skyr
» 2 tsk. bernes-bragðefni eða 2 msk hvítvínsedik
» safi úr 1 sítrónu
» 1stk. saxað hvítlauksrif
» salt og pipar
» 1tsk þurrkað fáfnisgras (estragon)
» nokkur lauf ferskt fáfnisgras

Fyrir 3 - 4 | skoða myndskeið

Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu.

Aðferð

Blandið öllu í kryddlöginn og hellið yfir svínakóteletturmar. Steikið á pönnu eða grillið þar til svínakóteletturnar eru bleikar (um 2-3mín á hvorri hlið). Kryddið til með salti og pipar eftir smekk.

Skyrbernes
Hrærið eggjarauður í hrærivél með sinnepinu og bætið olíunni við í mjórri bunu. Setjið skyrið út í og kryddið til með restinni af bragðefnunum. Geymið í kæli.

Bragðgóður byggréttur með nýju grænmeti, rækjum og lauk

None
29.9.2009 Íslenska byggið er til margra hluta nýtilegt í eldamennskunni. Það er hollt og sérlega gott. Gunnar Karl Gíslason á Dilli sýnir okkur hvernig má slá í gegn með einföldum byggrétti. Meira »

Ofnsteikt lambalæri

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1098.jpeg>>
28.1.2010 Sunnudaga hjá ömmu í gamla daga má kannski endurtaka einu sinni í mánuði - en ekki moðsteikja lambalærið í margar klukkustundir ef þið viljið bleikan vöðva! Meira »

Ristaðar svínakótelettur í eldpipar og lime

None
14.9.2009 Svínakjöt nýtur mikilla vinsælda enda herramannsmatur. Kótelettur er fljótlegt að matreiða og enginn getur staðist þær með ljúffengri skyrbernessósu. Meira »

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1099.jpeg>>
28.1.2010 Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér. Meira »

Snyrtar lambakótilettur með ferskum brögðum

None
3.8.2009 Lambakótilettur er mjög þekktur íslenskur réttur en þær voru gjarnan teknar með kaldar í útilegu áður en grillmenningin hóf innreið sína. Fólk ætti endilega að prófa þá rétti sem eru sýndir í þessum þætti - bæði hefbundnar kótilettur í raspi og nýstárlegri eldunaraðferð. Meira »

Nautasnitsel með ljúffengu kartöflusallati

None
21.9.2009 Nautasnitsel klikkar ekki og hvað þá kokkurinn Hrefna Sætran og Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskólans sem ætla að sýna okkur hvernig á að elda íslenskt nautakjöt. Meira »

Mínútusteik með kryddsmjöri og lauk

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1092.jpeg>>
27.1.2010 Það verður ekki betra en íslenskt smjör með fersku kryddi - hvað þá ofan á safaríka mínútusteik.  Meira »

Bakaðir lambaskankar í leirpotti

None
28.9.2009 Það er ekki amalegt að gæða sér á steiktum lambaskönkum og nýju rótargrænmeti þegar haustar á Fróni.  Meira »

Seðjandi svínasíða

None
20.7.2009 Íslensk svínarækt hefur þróast mikið á síðustu áratugum og úrvalssvínakjöt er nú í boði allt árið. Neysluvenjur neytenda hafa breyst og er nú svo komið að svínakjöt er einna vinsælasta kjöttegundin enda hagkvæm í innkaupum og spennandi í ýmsa rétti. Meira »

Létteldaður lax með blómkáli og sítrusávöxtum

None
24.8.2009 Bændur hafa um árabil stundað silungsveiðar og víða er hægt að kaupa nýveiddan fisk beint frá býli. Sannir veiðimenn borða að sjálfsögðu það sem þeir veiða en hægt er að elda bæði lax og silung með afar fjölbreytum hætti. Meira »

Grænmetis og kókos súpa Tom Ka Kai

None
17.8.2009 Þessi súpa fer með íslenska grænmetið í ferð um heiminn, bragðmikil og fersk upplifun í matargerð.  Meira »

Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri með appelsínusósu

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1071.jpeg>>
3.8.2009 Það verður ekki betra en gljáð kjúklingalæri.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar