Hjörtu með rauðum chili, sveppum og engifer

mynd með uppskrift
Hráefni
» 900 g lambahjörtu (fituhreinsuð og skorin í bita)
» 1 stk. rauður laukur (saxaður smátt)
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» 1 msk. ferskur engifer (rifinn)
» 1 stk. rauður chili (fræhreinsaður og skorinn í sneiðar)
» 2 stk sellerístilkar (skornir í borða)
» 6-7 sveppir
» 3 msk. sojasósa
» 2 dl eplasafi
» 1 og 1/2 dl rjómi

Fyrir 2 - 4

Hjörtu er mjög góð og þarf annað hvort að moðsjóða eða borða bleik.

Aðferð

Fituhreinsið hjörtun og skerið þau í frekar litla bita og steikið á pönnu í um 3 mín. með hvítlauknum. Sumum finnst gott að steikja nýru með hjörtunum. Setjið til hliðar. Steikið grænmetið, chili og engifer á pönnu í um 2 mín. Setjið þá hjörtun út í og steikið allt áfram. Bætið eplasafa og soyasósu út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið kröftuglega í 2-3 mín. Lækkið þá hitann, setjið rjómann í og látið allt malla í um 5-20 mín eftir smekk. Gott að bera fram með góðri kartöflumús, brauði og salati.

Þessi uppskrift er notuð í Lifrarpylsa Möggu Blóðmör Möggu, Sviðasulta með kryddlögðu hrásalati, Lambalifur með eplum ,

Meðlæti

Lifrarpylsa Möggu

Hráefni
» 2 lifrar
» 4 nýru
» 2 msk gróft salt
» 6 dl mjólk
» 1 ½ dl heitt vatn og
» ½ súputeningur
» 300 gr haframjöl
» 400 gr rúgmjöl
» 300-400 gr smátt skorinn mör

Fyrir 8 - 10 | skoða myndskeið

Slátur er selt annað hvort sem „þrjú slátur“ eða „fimm slátur“. Sumar verslanir selja slátrið í stykkjatali. Þrjú slátur eiga að duga í um níu máltíðir fyrir fjögurra manna fjölskyldu ef allt hráefnið er notað og bæði gerð lifrapylsa og blóðmör.

Aðferð

Byrjum á mörnum
Hvort sem gerð er lifrarpylsa eða blóðmör þarf að byrja á því að skera niður mörinn í hæfilega bita. Mælt er með því að skera hann ekki of smátt því þá geta þeir sem ekki vilja mikla fitu tekið bitana frá þegar slátrið er tilbúið. Ef kirtlar fylgja í mörnum eru þeir skornir frá og fleygt. Mörinn er síðan geymdur á köldum stað þar til hann er notaður.

Saumaskapur
Þar næst eru vambir og keppir teknir úr sláturkassanum og allt skolað. Sníða má 4 til 5 keppi úr hverri vömb en keppirnir eru síðan saumaðir saman með sláturgarni og skilið eftir vænt op. Geymið keppina á köldum stað á meðan lifrar- eða blóðmörshræran er löguð.

Himnuhreinsið lifur og nýru með því að klæða þau úr himnunni.

Maukið í matarvinnsluvél. Setjið lifrarhræruna í rúmgott fat, blandið vökva, salti og haframjöli saman við.

Látið standa í um 5 mínútur á meðan saltið leysist upp og haframjölið blotnar.

Hrærið rúgmjöli og mör saman við og passið að hafa hræruna ekki of þykka.

Lifrarhræran er höfð þykkari en blóðmörshræran. Gott er að setja örlítinn sykur út í hræruna, 1-2 tsk.

Hálffyllið keppina og saumið fyrir með bómullargarni. Ágætt er að nota gamaldags rjómasprautu við að koma hrærunni fyrir. Pikkið með nál og setjið út í sjóðandi vatn, sjóðið í 2 ½ klukkutíma. Athugið að salta vatnið.

Ef frysta á keppina eru þeir settir í plastpoka. Þegar slátur er tekið úr kistunni til suðu eru frosnu keppirnir settir út í heitt vatn með salti og soðnir í 3 klukkutíma. Ekki láta slátrið þiðna fyrir suðu.

Þegar slátrið er fryst eru göt pikkuð á keppina þegar suðan kemur upp.

Útfærsla Guðmundar - tilbrigði við lifrarpylsu:

Fíntsaxað beikon, sveppir, timijan og graslaukur er sett í sláturhræruna.

Blóðmör Möggu

Hráefni
» 1 líter blóð
» 7 dl vatn
» 2 msk gróft salt
» 400 gr haframjöl
» 500 gr rúgmjöl
» 500-600 gr mör

Fyrir 8 - 10 | skoða myndskeið

Hver vill ekki eiga nóg af blóðmör og lifrarpylsu í frystikistunni áður en vetur gengur í garð? Einu slátri fylgir: Sviðahaus, 2 nýru, lifur, hjarta, mör, frosið blóð, vömb og keppur

Aðferð

Sigtið blóðið og blandið vatni og salti út í ásamt haframjölinu. Látið standa í smá stund á meðan saltið leysist upp og haframjölið blotnar. Setjið rúgmjölið út í ásamt mör og hrærið á meðan. Varist að gera hræruna of þykka.

Felið upp, þ.e. setjið hræruna í keppina. Hafið þá rúmlega hálfa og saumið fyrir. Pikkið með nál lítil göt á hvern kepp og setjið í sjóðandi vatn með salti. Sjóðið í 2 ½ klst.

Það slátur sem á að frysta er sett í frystipoka en gott ráð er að hafa pokana flata með því að hafa þá á bökunarplötu, loka vel og setja strax í frost.

Útfærsla Guðmundar: Gott er að setja rúsínur og ýmis krydd í blóðmörshræruna.

Sviðasulta með kryddlögðu hrásalati

Hráefni
» nokkur fræ eða hnetur
» 1 stk. sviðasulta
» 100 ml Olía
» 10 ml Edik
» 200 g Blandað grænmeti (Rófur, gulrætur, steinseljurót)
» 20 stk. Rúsinur

Fyrir 4 - 6

Eldum íslenskt

Aðferð

Sviðasultan er  skorin í sneiðar, grænmetið er skorið með grænmetisflysjara, kryddað með olíu og ediki, salti, pipar og kryddjurtum.

Lambalifur með eplum

Hráefni
» 2 stk. epli
» 1 kg lambalifur, hrá
» 3 msk. hveiti
» ½ tsk pipar, svartur
» ½ tsk salt, borðsalt
» 4 msk sojasósa
» 400 ml vatn eða epla safi

Fyrir 4 - 6

Lifur er hollur matur sem gott er að steikja með eplum eða kartöflumús. Gott er líka að bæta nýrum í réttinn.

Aðferð

Lifrin er skorin í hæfilega bita sem og eplin.

Lifrin krydduð með salti og pipar og steikt með eplunum. Lifur er best ef hún er ekki alveg gegnumsteikt. Hún þarf að vera örlítið bleik innst líkt og góð steik Þegar lifrin er að verða klár má græja sósuna. Best er að setja 1-2 bolla af vatni út á pönnuna og hrista hveiti í smá vatni, hræra það svo út í. Þá er sojasósunni hellt útí. Hún gefur allan þann lit sem þarf og kryddar sósuna til viðbótar.

Pönnusteiktar hunangsgljáðar svínakótelettur með grænmetisblöndu (ragout)

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1104.jpeg>>
11.2.2010 Svínakjöt er gott og auðvelt að elda. Það tekur vel við skemmtilegum kryddum en hér beitum við asískum brögðum á svínakótelettur. Meira »

Nautaframhryggur með íslenskri kryddblöndu

None
2.11.2009 Árni Björn á svangur.is eldar hér skemmtilega og bragðgóða nautasteik  Meira »

Folaldasneiðar með tómat og kryddolíu

None
19.10.2009 Folaldakjöt er meyrt og gott svo bráðnar í munni. Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri í Hússtjórnarskólanum sýnir okkur fljótlega aðferð við eldun á folaldafile. Meira »

Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1099.jpeg>>
28.1.2010 Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér. Meira »

Blóðmör Möggu

None
30.9.2010 Hver vill ekki eiga nóg af blóðmör og lifrarpylsu í frystikistunni áður en vetur gengur í garð? Einu slátri fylgir: Sviðahaus, 2 nýru, lifur, hjarta, mör, frosið blóð, vömb og keppur Meira »

Nýveidd bleikja nammi namm!

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1101.jpeg>>
10.2.2010 Það þarf ekki mikið að gera við nýja bleikju! Smá mjörklípa, salt og pipar er allt sem þarf til.  Meira »

Pönnukökur fylltar með afgangskjöti og fíflasírópi

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1068.jpeg>>
27.7.2009 Sniðugt er að nota afgangskjöt í góða máltíð með því að setja þær í pönnukökur með sallati og fleira góðgæti.  Meira »

Sumarlegt byggsalat með vorgrænmeti og villtum kerfli

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1097.jpeg>>
28.1.2010 Íslenskt bygg er hollt og gott og ekki skemmir að það er oft lífrænt ræktað án allra aukaefna  Meira »

Nautasnitsel með nýjum kartöflum

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1096.jpeg>>
27.1.2010 Kjötsneiðar í brauðraspi finnst öllum gott og ekki skemmir að nota smá smjör til steikingar!  Meira »

Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri með appelsínusósu

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/01/27/image_1071.jpeg>>
3.8.2009 Það verður ekki betra en gljáð kjúklingalæri.  Meira »

Kjötsúpa með nautakjöti

<bound method ImageFieldFile.caption of <ImageFieldFile: recipes/2010/02/15/image_1102.jpeg>>
10.2.2010 Náttúruleg, heit og holl, upplagt að elda daginn áður. Þessi uppskrift hefur hlotið mjög góða dóma   Meira »

Létteldaður lax með blómkáli og sítrusávöxtum

None
24.8.2009 Bændur hafa um árabil stundað silungsveiðar og víða er hægt að kaupa nýveiddan fisk beint frá býli. Sannir veiðimenn borða að sjálfsögðu það sem þeir veiða en hægt er að elda bæði lax og silung með afar fjölbreytum hætti. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar