Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
19. október
NORMALBRAUÐ (OG MALTBRAUÐ)
- Hráefni
- » 500 g hveiti
- » 400 g rúgsigtimjöl(sigtimjöl)
- » 20 g salt
- » 30 g þurrger (2 bréf)
- » 500 ml vatn
Fyrir 4
innkaupalisti fyrir 4 undir 2000 kr. 500 g hveiti 400 g rúgsigtimjöl(sigtimjöl) 20 g salt 30 g þurrger (2 bréf)Aðferð
Hellum öllum hráefnunum í skál eða matvinnsluvél og hnoðum saman. Skiptum deiginu í tvennt, rúllum og formum 2 brauð. Setjum í stórt smurt form, breiðum rakt viskustykki yfir deigið og látum brauðið hefast upp að brúninni á forminu. Bakað við 200 gráður í 1 1/2 klukkutíma.
Uppskrift úr bókinni Einfalt með Kokkalandsliðinu (Árni Torfason ljósmyndari)
Sama uppskrift er fyrir maltbrauð, nema þá er notað rúgmjöl í staðin fyrir rúgsigtimjöl. Þessi uppskrift dugar í 2 brauð.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1117/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















