BLÓMKÁLSSÚPA MEÐ BLÓMKÁLSKURLI
- Hráefni
- » 1 1/2 blómkálshaus
- » 400 ml rjómi
- » 400 ml nýmjólk
- » Safi úr hálfri sítrónu
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr 1 1/2 blómkálshaus 400 ml rjómi 400 ml nýmjólk Safi úr hálfri sítrónuAðferð
Skerum heila blómkálshausinn í bita og setjum í pott með mjólk og rjóma. Látum allt sjóða þar til kálið verður mjúkt undir tönn. Maukum súpuna í blandara og setjum svo maukið aftur út í pottinn til að þykkja súpuna. Notum salt, kjúklingakraft og sítrónusafa til að laða bragðið fram. Rífum svo hálfa blómkálshausinn með grófu rifjárni og myndum þannig kurlið sem við sáldrum yfir súpuna. Berum fram með grófu brauði og smjöri.
Uppskrift úr bókinni Einfalt með Kokkalandsliðinu (Árni Torfason ljósmyndari)
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





















