Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
26. október
STEIKTUR ÞORSKUR
- Hráefni
- » 800 g þorskur
- » 100 g laukur
- » 1 stk sítróna
- » 200g g smjör
- » ögn Olía
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr. 800 g þorskur 100 g laukur 1 stk sítróna 200 g smjör OlíaAðferð
Steiktur þorskur klikkar ekki. Best er að vera með þykkan bita, því þá ofeldast hann ekki of fljótt. Þerrum fiskinn og kryddum hann með salti og pipar. Skerum laukinn í sneiðar eða bita. Hitum pönnuna með smá olíuslettu og bætum svo smjörinu út á, þegar smjörfroðann minnkar setjum við fiskinn og laukinn á pönnuna og látum krauma þar til fiskurinn er eldaður. Kreistum að lokum pínu sítrónusafa yfir fiskinn og skreytum með sítrónubát. Berum fram með uppáhaldskartöflunum okkar.
Uppskrift úr bókinni Einfalt með Kokkalandsliðinu (Árni Torfason ljósmyndari)
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1124/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















