Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
12. nóvember
STEIKT SVÍNASÍÐA MEÐ DILL MARINERUÐUM EPLUM
- Hráefni
- » 1/2 stk svínasíða
- » 1 stöng kanill stöng
- » 5 stk negull
- » 1/2 búnt Blóðberg/rósmarín
- » 2 stk þurrkuð lárviðarlauf
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4undir 2000kr. 1/2 stk svínasíða 1 stöng kanill stöng 5 stk negull 1/2 búnt Blóðberg/rósmarín 2 stk þurrkuð lárviðarlaufAðferð
Snyrtum síðuna og leggjum hana í stóran pott eða ofnskúffu. Hellum vatni í og bætum kryddinu út í. Ef til er kjötsoð er gott að nota það í stað vatns, annars er gott að bæta kjúklingakrafti út í vatnið. Setjum lok á pottinn eða fatið og bökum í ofni við 80 gráður í 8 tíma. Kælum loks kjötið, skerum það niður í sneiðar og steikjum þær á heitri pönnu á báðum hliðum. Gott að bera fram með góðum kartöflum og að sjálfsögðu dill marineruðum eplum (sjá uppskrift í kaflanum meðlæti).
TIPS: Lárviðarlauf gefa líka mjög góðan kraft í þennan mat og mega gjarnan fljóta með í soðið ef þau eru til.
Einfalt með Kokkalandsliðinu (Árni Torfason ljósmyndari)
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1134/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















