Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
28. nóvember
Kjúklingasalat með rauðlauk
- Hráefni
- » 1 kjúklingur
- » ½ saxaður rauðlaukur
- » 1 búnt klettasalat
- » kryddjurtir að eigin vali
- » ber, til dæmis kirsuber eða bláber
- » ögn Olía
- » Eftir smekk salt og pipar
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr 1 kjúklingur ½ saxaður rauðlaukur 1 búnt klettasalat kryddjurtir að eigin vali ber, til dæmis kirsuber eða bláber Í eldhúsinu: Olía salt og piparAðferð
Heilgrillið kjúkling í ofni eða á grilli. Meðan á eldun
stendur getur verið gott að pensla fuglinn öðru hverju með
olíu svo hann verði sem safaríkastur.
Kryddið með salti og pipar eftir 1 klst. eldun eða þegar
safinn inni í kjúklingnum er orðinn glær og enginn blóðsafi
sjáanlegur.
Þá er kjúklingurinn rifinn saman við salatið og smá olíu
blandað saman við. Kryddað til með salti og pipar.
Uppskrift úr Eldum íslenskt með Kokkalandsliðinu ný bók
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1142/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















