Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
5. desember
Ofnbakaður saltfiskur með beikon
- Hráefni
- » 800 g saltfiskur
- » 2 cm engiferrót
- » 1 stk. blaðlaukur
- » 100 g íslenskur cheddar-ostur
- » 12 sneiðar beikon (stökksteikt)
- » 40 g smjör
- » 40 g hveiti
- » 300 ml mjólk
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr. 800 g saltfiskur 2 cm engiferrót 1 stk. blaðlaukur 100 g íslenskur cheddar-ostur 12 sneiðar beikon (stökksteikt) Í eldhúsinu: 40 g smjör 40 g hveiti 300 ml mjólkAðferð
Bræðið smjörið í potti. Steikið hveitið í smjörinu við lágan
hita í 5 mín.
Bætið mjólkinni út í og hrærið með písk. Rífið engiferrótina
saman við.
Skerið fiskinn í bita sem og blaðlaukinn.
Setjið fisk í eldfast mót, raðið blaðlauknum ofan á, hellið
smá sósu, rífið cheddar-ost yfir og leggið loks beikonsneiðarnar
ofan á.
Eldið við 180°C í 30 mín. með álpappír og svo í 10 mín. án
álpappírs til að brúna ostinn.
Gott er að rífa tvö hvítlauksrif með engiferrótinni fyrir
þá sem vilja enn meira bragð.
(uppskrift úr Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu Ný Bók)
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1147/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















