Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
23. desember
REYKÝSUPLOKKFISKUR MEÐ BLAÐLAUK
- Hráefni
- » 400 gr kartöflur
- » 600 gr reykt ýsuflök (roð- og beinlaus)
- » 1 peli matreiðslurjómi
- » 1 stk blaðlaukur (meðalstór)
- » 100 gr smjör
Fyrir 4
innkaupalisti fyrir undir 2000kr. 400 gr kartöflur 600 gr reykt ýsuflök (roð- og beinlaus) 1 peli matreiðslurjómi 1 stk blaðlaukur (meðalstór) 100 gr smjörAðferð
Sjóðum kartöflurnar. Skerum blaðlaukinn langsum og skolum hann undir köldu vatni. Skerum laukinn svo í bita og ýsuna í litla kubba. Setjum smjörið í pott og eldum blaðlaukinn við vægan hita í um 5 mínútur eða þar til hann er orðinn mjúkur í gegn. Bætum svo fiskinum og rjómanum út í pottinn. Þegar fiskurinn er tilbúinn, eftir um 10 mínútur tökum við kartöflunar heitar úr pottinum og stöppum þeim saman við við fiskinn. Bragðbætum með salti og hvítum pipar.
Uppskrift úr Einfalt með kokkalansliðinu Mynd Árni Torfason
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1160/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





















