Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
28. desember
langa í karrísósu með hýðisgrjónum
- Hráefni
- » 160-180 gr hreinsaður fiskur á mann
- » ½ bolli hýðisgrjón ósoðin
- » 2 stk laukur
- » 2 stk gulrætur
- » 400 gr seljurót
- » 1 matskeið karrí
- » 1 desilíter matreiðslurjómi
- » 1 desilíter hveiti eða maizenamjöl
- » 1 teningur fiski-eða grænmetiskraftur
- » eftir smekk salt og pipar
- » olía til steikingar
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr.160-180 gr hreinsaður fiskur á mann ½ bolli hýðisgrjón ósoðin 2 stk laukur 2 stk gulrætur 400 gr seljurót 1 matskeið karrí 1 desilíter matreiðslurjómi 1 desilíter hveiti eða maizenamjöl 1 teningur fiski-eða grænmetiskraftur salt og pipar olía til steikingarAðferð
Skerið fiskinn í ca 80-90 gr steikur. Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum(ca. 35-45 mín)
Steikið síðan fiskinn létt á hvorri hlið og kryddið með salti og pipar.
Á með fiskurinn er á pönnunni er grænmetið skolað, skrælt og sneitt í fremur smáa stöngla og síðan sett í pönnuna á eftir fiskinum.
Þessu er síðan raðað í eldfast mót og smá vatn sett í pönnuna og smakkað til ásamt því að vera þykkt svo úr verði karrísósa.
Sósunni er hellt yfir fiskinn og bakað við 160°C í u.þ.b. 20 mín(fer eftir þykkt á steikunum).
Leyft að standa í nokkrar mínútur og framreitt með hýðisgrjónum og e.t.v. fersku tómat-og gúrkusalati.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1164/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















