Gott, hollt og ódýrt
|
mbl
|
28. desember
Folaldafille á spjóti með piparsósu og kartöflusmælki
- Hráefni
- » 120 gr á mann af folaldafille. eða öðrum meyrum vöðva
- » 1 box sveppir
- » 1 stk rauð paprika
- » 1 stk rauðlaukur
- » 1 stk kúrbítur
- » 120 gr á mann af smáum kartöflum
- » 1 matskeið svartur pipar mulinn
- » 1 matskeið hafsalt gróft
- » 1 teskeið sojasósa
- » 1 desilíter matarolía
- » 1 desilíter 10% sýrður rjómi
- » 1 teskeið flórsykur
- » 2 grillspjót á mann
Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr. 120 gr á mann af folaldafille eða öðrum meyrum vöðva. 1 box sveppir 1 stk rauð paprika 1 stk rauðlaukur 1 stk kúrbítur 120 gr á mann af smáum kartöflum 1 matskeið svartur pipar mulinn 1 matskeið hafsalt gróft 1 teskeið sojasósa 1 desilíter matarolía 1 desilíter 10% sýrður rjómi 1 teskeið flórsykur 2 grillspjót á mannAðferð
Sneiðið kjötið í teninga og þerrið, leggið síðan í skál ásamt sojasósu og smá matarolíu.
Setjið kartöflurnar yfir í suðu, gætið þess að sjóða ekki of lengi.
Skerið grænmetið í kubba sem eru u.þ.b. 2,5 cm á kant, og leggið til hliðar.
Þessu næst er grænmetið og kjötið þrætt á grillspjótin og kryddað með pipar og smá salti(ath að sojasósan er sölt).
Spjótin eru síðan steikt á grillpönnu í u.þ.b. 2 mín á hverri hlið.
Sósan er útbúin á meðan kjötið er á pönnunni. Blandið saman sýrðum rjóma, u.þ.b. 1 teskeið af svörtum pipar, flórsykrinum og smá salti.
Framreitt með kartöflusmælki og piparsósu. En einnig getur verið gott að láta smá ferskt salat fylgja með til að létta aðeins réttinn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1165/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira






















