Ítalskt brauð með pesto og parmigiano osti

Hráefni
» 600 g hveiti
» 4 tsk. (1 bréf) þurrger, sléttfullar
» 1-1/2 dl mjólk, ylvolg
» 1 tsk. lyftiduft, sléttfull
» 3 msk. sykur, sléttfullar
» 1 tsk. salt, sléttfull
» 70 g smjör
» 1-1/2 dl vatn, ylvolgt
» 1 stk. egg
» 4 msk. pestómauk (grænt), sléttfullar
» 60 g parmigiano ostur
» ögn pesto til að pensla brauðið fyrir bakstur

Aðferð

Hrærið þurrgerið út í ylvolga mjólkina, látið standa í 5 mínútur.

Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivélarskálina með hnoðaranum. Bætið síðan í mjólkinni með gerinu, vatni, smjöri, eggi og pesto. Hnoðið í 5 mín. á lægsta hraða. Takið úr skálinni, mótið deigið í langt snittubrauð og skerið í 15-20 sneiðar, um 2 cm þykkar (u.þ.b. 40 g hverja). Setjið á smurða bökunarplötu og skerið lauslega ofan í hvern hleif. Látið hefast við stofuhita í 20 mínútur.

Penslið síðan með pesto og leggið litla sneið af parmigiano osti ofan á hvern hleif. Þegar deigið er sett í heitan ofninn er 1 dl af vatni skvett í ofnbotninn og honum síðan lokað. Bakið í 20 mínútur við 200°C.

Aðrir möguleikar

Einnig er hægt að skipta deiginu í tvennt og baka tvö 500 g snittubrauð eða eitt stórt brauð (1 kg). Snittubrauðin þurfa að hefast í 30 mínútur og bakast í 25-30 mínútur við 200°C. Eitt stórt brauð hefast í 35 mínútur og bakast í aðrar 35 mínútur við 200°C.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar