Sesambrauð

Hráefni
» 600 g hveiti
» 4 tsk. þurrger, sléttfullar (eitt bréf)
» 1 tsk. lyftiduft, sléttfull
» 3 msk. sykur, sléttfullar
» 1 tsk. salt, sléttfull
» 75 g smjör
» 1-1/2 dl mjólk, ylvolg
» 1-1/2 dl vatn, ylvolgt
» 1 stk. egg
» 200 g sesamfræ, léttbrúnuð á þurri pönnu

Aðferð

Leysið gerið upp í ylvolgri mjólk. Látið standa í 5 mínútur. Öllum þurrefnunum blandað saman með hnoðara. Bætið út í gerblöndu, vatni, smjöri, sesamfræjum og eggi. Hnoðið í fimm mínútur. Deigið tekið úr skálinni og mótað í 15-20 tveggja cm þykkar sneiðar (hleifa). Sett á smurða plötu, tvær rákir skornar í hvern hleif. Látið hefast við stofuhita í 20 mínútur og bakið í aðrar 20 mín. við 200°C. Skvettið einum dl af vatni í botninn á ofninum þegar baksturinn hefst.

Aðrir möguleikar

Einnig er hægt að skipta deiginu í tvennt og baka tvö 500 g snittubrauð eða eitt stórt brauð (1000 g). Snittubrauðin þurfa að hefast í 30 mínútur og bakast í 25-30 mínútur við 200°C, eitt stórt brauð þarf að hefast í 35 mínútur og bakast í aðrar 35 mínútur við 200°C.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar