Gróft fjölkornabrauð
- Hráefni
- » 450 g hveiti
- » 100 g heilhveiti
- » 4 msk. hveitikorn, sléttfullar
- » 4 msk. heilir hafrar, sléttfullar
- » 4 msk. sólblómafræ, sléttfullar
- » 4 msk. hörfræ, sléttfullar
- » 3 tsk. þurrger, sléttfullar
- » 1 tsk. lyftiduft, sléttfull
- » 3 msk. sykur, sléttfullar
- » 1 tsk. salt, sléttfull
- » 75 g smjör
- » 3 dl mjólk, ylvolg
- » 1-1/2 dl vatn, ylvolgt
- » 1 stk. egg
Aðferð
Leysið gerið upp í ylvolgri mjólkinni. Blandið öllum þurrefnum saman. Hrærið síðan gerblöndu, súrmjólk, smjöri, eggi og vatni saman við. Hnoðið þar til deigið er laust frá skálinni. Mótið tvær brauðlengjur eða nokkur minni brauð, leggið á smurða bökunarplötu og látið hefast við stofuhita í 20-30 mínútur (eftir stærð brauðanna). Skerið raufar í hvert brauð, penslið með vatni eða útslegnu (hrærðu) eggi og bakið við 200°C í 20-30 mínútur. Skvettið einum dl af vatni í botninn á ofninum þegar baksturinn hefst.
Aðrir möguleikarEinnig er hægt að skipta deiginu í tvennt og baka tvö 500 g snittubrauð eða eitt stórt brauð (1 kg). Snittubrauðin þurfa að hefast í 30 mínútur og bakast í 25-30 mínútur við 200°C, eitt stórt brauð þarf að hefast í 35 mínútur og bakast í aðrar 35 mínútur við 200°C.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










