Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Kjúklingabrauðsneið sælkerans
- Hráefni
- » 4 sneiðar gróft fjölkornabrauð, ristað á pönnu (uppskrift
- » 600 g kjúklingabringur, beinlausar
- » 2 stk. tómatar
- » 1/2 haus jöklasalat
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 4 stk. sveppir, stórir
- » 1 bakki baunaspírur
- » 16 stk. sykurbaunir
- » 12 stk. beikonsneiðar, steiktar stökkar
- » Rauðvínsediksósa (vinaigrette)
- » 1 dl rauðvínsedik
- » 3 msk. dijon sinnep
- » 2 msk. Worchestershiresósa
- » 1 dl púðursykur, dökkur
- » 3 stk. hvítlauksrif, pressuð
- » 1 dl matarolía
- » 2 msk. fersk steinselja, söxuð
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjúklingabringurnar í strimla og steikið í olíu í 2-3 mínútur. Leggið jöklasalat á brauðsneið og setjið tómatsneiðar og sneiddan rauðlauk ofan á. Þar ofan á kemur vel steikt beikon, kjúklingastrimlar, sveppir, baunaspírur og sykurbaunir í strimlum. Rauðvínsedikssósan sett yfir að lokum með matskeið.
Rauðvínsedikssósa (vinaigrette)Allt sett í matvinnsluvél og maukað, matarolíunni bætt í síðast, hægt og rólega.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/241/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









