Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Graslauksbrauð með hvítlauksrækjum
- Hráefni
- » 4 sneiðar graslauksbrauð, stórar (sjá brauðuppskrift
- » 20 stk. risarækjur, forsoðnar
- » 3 msk. olía til steikingar
- » 12 stk. hvítlauksrif
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 1-1/2 stk. paprika (rauð, gul eða græn eftir smekk)
- » 1 bakki baunaspírur
- » 150 g blaðlaukur
- » 1 haus eikarlauf
- » djúpsteikingarolía
- » Sósa
- » 4 msk. kjúklingachilisósa (Sweet Chili Sauce for Chicken)
- » 4 msk. balsamedik
- » 4 msk. hvítlauksolía
Fyrir 4
Aðferð
Skerið hvítlauk í sneiðar og blaðlauk í grófa strimla. Djúpsteikið þar til hvort tveggja byrjar að dökkna. Steikið risarækjurnar í olíu, kryddið með salti og pipar. Leggið salatblöð á brauðsneiðarnar. Skerið papriku í fína strimla, blandið saman við rauðlauk og baunaspírur og leggið á salatið. Risarækjurnar lagðar þar ofan á, 5 stk. á hverja brauðsneið. Sósan sett yfir með skeið. Efst fer svo djúpsteikti hvít- og blaðlaukurinn.
SósanÖllu blandað saman, hrært hressilega.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/242/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










