Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Skinku- og pepperonibrauð með tómatsalati
- Hráefni
- » 4 stk. sneiðar kúmenbrauð, stórar (uppskrift
- » 4 stk. tómatar
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 20 stk. svartar ólífur
- » 4 msk. kapers
- » 8 sneiðar skinka
- » 24 stk. pepperonisneiðar
- » 1/3 stk. blaðlaukur
- » olía til djúpsteikingar
- » Tómat- og paprikusósa
- » 4 tsk. tómatmauk (puré)
- » 2 stk. tómatar
- » 1 stk. paprika, rauð
- » 1/2 stk. rauðlaukur
- » 1/2 dl balsamedik
- » 3 stk. hvítlauksrif
- » 4 msk. steinselja
- » 1 dl matarolía
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » Allt sett í matvinnsluvél og maukað í hálfa mínútu.
Fyrir 4
Aðferð
Blaðlaukurinn skorinn í 15 cm. langa strimla. Djúpsteikið strimlana þar til þeir eru ljósbrúnir. Látið drjúpa af þeim á servíettu á meðan brauðsneiðin er löguð. Leggið pepperoni- og skinkusneiðarnar á brauðsneiðina. Blandið saman tómatstrimlum, sneiddum rauðlauk, sneiddum ólífum og kapers. Leggið ofan á áleggssneiðarnar og vætið með sósunni. Djúpsteiktur blaðlaukur lagður efst.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/243/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










