Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Grillað ungnautakjöt á grófu brauði
Fyrir 4
Aðferð
Ristið brauðsneiðarnar á heitri pönnu, smyrjið með hvítlaukssósunni. Leggið salatblað á hverja sneið og langsneiddar sýrðar gúrkur. Hitið 2 msk. af sojaolíu á pönnunni og steikið beikonið stökkt. Skerið rauðlaukinn í sneiðar og tómatana í strimla, bætið á pönnuna og kryddið með salti og pipar. Takið til hliðar og haldið heitu.
Sveppirnir skornir í sneiðar, spergilkál í litla bita og steikt á pönnu ásamt belgbaunum og smámais.
Hreinsið pönnuna og hitið aðrar 2 msk. af sojaolíu. Steikið kjötið í 8 mínútur, veltið af og til, penslið með grillsósunni, leggið á brauðsneiðarnar og steikta grænmetið þar ofan á.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/244/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










