Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Beikon- og ólífubrauð með blönduðu áleggi
- Hráefni
- » 4 sneiðar beikon- og ólífubrauð (stórt, uppskrift
- » 4 sneiðar reyktur lax (30 g hver)
- » 4 sneiðar beikonskinka (20 g hver)
- » 4 sneiðar skinka (40 g hver)
- » 1 stk. kúrbítur
- » olía til djúpsteikingar
- » Grænmetisteningar
- » 2 stk. paprika, rauð og græn
- » 2 stk. sýrðar smágúrkur (gherkins)
- » 4 sneiðar rauðlaukur
- » Sósa
- » 2 stk. egg, harðsoðin
- » 2 msk. steinselja
- » 4-5 msk. kapers
- » 2 stk. sýrðar smágúrkur
- » 2 msk. Worchestershiresósa
- » 1 dós sýrður rjómi (18%)
- » Maukið allt í matvinnsluvél.
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kúrbítinn í þunnar sneiðar, t.d. með ostaskera. Djúpsteikið þar til hann fær fallegan lit. Setjið nú 1-2 msk. af sósunni á hvern disk og brauðsneiðarnar þar yfir. Leggið síðan áleggið á brauðsneiðarnar og djúpsteiktar kúrbítssneiðar þar yfir. Skerið papriku, sýrðar gúrkur og rauðlauk í teninga, blandið vel saman og dreifið yfir áleggið. Berið afganginn af sósunni fram í skál.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/247/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










