Brauð með nautakjötsstrimlum og sinnepi

Hráefni
» 4 stk. brauðsneiðar, stórar
» 400 g nautakjötsstrimlar (úr hrygg eða snitzel)
» 3 msk. dijon sinnep
» 4 stk. belgbaunir
» 1 stk. paprika, rauð
» 12 stk. sykurbaunir
» 8-10 stk. cherrytómatar
» 1/3 stk. blaðlaukur
» 1 haus lambhagasalat
» 4 msk. matarolía til steikingar
» 4 msk. graskersfræ
» salt og svartur pipar
» Djúpsteiktur blaðlaukur
» 100 g blaðlaukur
» olía til djúpsteikingar
» Sinneps- og edikssósa (vinaigrette)
» 1/2 dl appelsínusafi
» 1/2 dl hvítvínsedik
» 1/2 tsk. hunang
» 4 msk. estragon, ferskt, saxað
» 1 stk. hvítlauksrif, saxað
» 2 msk. dijon sinnep
» 1 dl matarolía
» salt og svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Léttbrúnið graskersfræin á heitri, þurri pönnu. Leggið til hliðar. Skerið blaðlaukinn í strimla og djúpsteikið. Leggið einnig til hliðar og látið drjúpa af.

Hitið olíuna vel á pönnu og snöggsteikið nautakjötsstrimlana. Takið af pönnunni og hrærið sinnepinu saman við strimlana. Setjið 1-2 msk. af sósu á disk og leggið brauðsneiðarnar þar í. Leggið lambhagasalatið yfir brauðsneiðarnar.

Skerið belgbaunir, sykurbaunir og papriku í strimla, cherrytómatana í tvennt, blaðlaukinn í sneiðar. Léttsteikið grænmetisstrimlana, blandið saman við tómatahelmingana og setjið á salatblöðin. Dreifið kjötstrimlunum þar ofan á, brúnuðum graskersfræjum í kring og djúpsteiktum blaðlauk efst.

Sinneps- og edikssósa

Öllu blandað vel saman í matvinnsluvél. Látið standa í 4 klst. fyrir notkun.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar