Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Grísahnakkabrauð með sætri hvítlauks- og sojasósu
- Hráefni
- » 8 stk. brauðsneiðar, stórar
- » 600 g svínahnakki, úrbeinaður, barinn í fjórar þunnar steikur
- » 4 lauf Lollo Rosso
- » 80 g spergilkálstoppar
- » 1 stk. hvítlaufssalat (endívur)
- » 8 stk. hvítlauksrif
- » 100 g baunaspírur
- » 12 stk. smámaís
- » 4 msk. graslaukur
- » 1 stk. gulrót
- » 60 g baunaspírur
- » 4 stk. grænn spergill, stór
- » Hvítlauks- og sojasósa
- » 2 msk. matarolía
- » 2-3 stk. hvítlauksrif
- » 2 msk. kjúklingachilisósa (Sweet Chili for Chicken)
- » 1 dl sæt sojasósa
- » 1/2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
- » Blandið öllu saman í matvinnsluvél.
Fyrir 4
Aðferð
Ristið brauðsneiðarnar á pönnu eða stingið undir grillið í ofninum í 1-2 mínútur. Skerið spergilinn í tvennt og síðan í fernt eftir endilöngu. Saxið grænmetið og skerið í strimla, léttsteikið síðan á pönnu og kryddið með salti og pipar. Skerið hvítlaukinn í sneiðar og djúpsteikið. Penslið grísahnakkasteikurnar með olíu, steikið á pönnu í 4 mín. á hvorri hlið. Kryddið með salti og svörtum pipar.
Leggið salatblöð á hverja brauðsneið, grísahnakkasneiðarnar þar yfir og dreifið grænmetinu ofan á. Skreytið með söxuðum graslauk, djúpsteiktum hvítlauk og 1-2 msk. af sósu.
Flysjið gulrótina og sneiðið með ostaskera.
Hvítlaufssalatið klofið með hníf.
Stilkurinn fjarlægður.
Skorið í strimla.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/249/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










