Laufsalat með pepperoni og svörtum ólífum

Hráefni
» 1 stk. hvítlaufssalat (endívur)
» 1 stk. eikarlauf
» 1 stk. rauðlaufssalat (radicchio)
» 100 g pepperoni í sneiðum
» 100 g ólífur, svartar
» 120 g strengjabaunir
» 4 msk. graslaukur
» 1 stk. kúrbítur, grænn
» olía til djúpsteikingar
» Hvítlauksedikssósa
» 1 msk. oregano, ferskt (eða 1/2 msk. þurrkað)
» 1 msk. basil, ferskt (eða 1/2 msk. þurrkað)
» 2 msk. sítrónusafi
» 2 dl hvítvínsedik
» 2 dl matarolía
» 2 msk. síróp (Maple Syrup)
» 2 msk. kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
» 1 stk. rauðlaukur, saxaður
» 2 stk. hvítlauksrif, söxuð
» salt og svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Báðir endar skornir af strengjabaununum og þær síðan soðnar í 3 mín. í léttsöltu vatni. Kælið og blandið síðan saman við önnur hráefni í salatið. Sósunni hellt yfir. Kúrbíturinn skorinn í sneiðar með ostaskera eftir endilöngu, djúpsteiktur. Lagður ofan á salatið með nokkrum graslauksstráum.

Hvítlauksedikssósa

Öllu blandað vel saman með pískara. Látið sósuna standa í 3-4 tíma fyrir notkun.

Hollráð

Þetta salat hentar vel sem meðlæti með grilluðu kjöti eða fiski. Berið gjarnan fram með pestóbrauði (uppskrift hér).

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar