Djúpsteikt grænmeti á laufsalati

Hráefni
» 2 hausar Lollo Rosso
» 1/2 haus jöklasalat
» 8 msk. möndluspænir
» Djúpsteikt grænmeti
» 2-3 stk. rauðrófur
» 100 g blaðlaukur
» 1/2 stk. seljurót
» 1 stk. kúrbítur
» Sítrónusósa
» 2 dl matarolía
» 2 msk. sítrónusafi
» 2 dl hvítvínsedik
» 1/2 dl appelsínusafi
» 1 tsk. sítrónubörkur, fínt rifinn
» 2 stk. skalotlaukur
» 1 stk. hvítlauksrif
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Stingið möndlunum inn í snarpheitan ofn (200°C) og brúnið í u.þ.b. 10 mínútur. Leggið jöklasalatið á disk, fyllið með rifnu Lollo Rosso og hvítlaufssalati í strimlum. Sósunni hellt yfir og djúpsteikta grænmetið lagt þar yfir. Brúnuðum möndlum dreift yfir.

Djúpsteikt grænmeti

Rauðrófurnar afhýddar með hníf og síðan sneiddar í flögur með ostaskera, kúrbíturinn sömuleiðis. Blaðlaukurinn er skorinn í 10 cm langa bita og síðan í grófa strimla. Flysjið seljurótina, skerið í sneiðar með ostaskeranum. Setjið hverja grænmetistegund í skál og saltið, látið standa í 10 mínútur. Skolið síðan vel, þerrið og djúpsteikið þar til það fær fallega gullinn lit.

Sítrónusósa

Blandið öllu saman og látið standa í 3-4 tíma fyrir notkun.

Annað meðlæti

Gróft brauð hentar vel með þessu salati.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar