Kjúklinga- og rækjusalat með djúpsteiktum núðlum
- Hráefni
- » 600 g kjúklingabringur, beinlausar
- » 20 stk. risarækjur, pillaðar
- » 500 g eggjanúðlur
- » olía til djúpsteikingar
- » Marinering
- » 4-6 msk. ostrusojasósa
- » 3 stk. hvítlauksrif, söxuð
- » 1 msk. kóríanderfræ
- » 1 tsk. engifer, saxaður
- » 1-2 msk. maizenamjöl
- » Blandið öllum efnunum vel saman í skál.
- » Litríkt grænmetissalat
- » 1/2 haus jöklasalat
- » 1 bakki baunaspírur
- » 100 g sykurbaunir
- » 2 stk. paprika, rauð og gul
- » 1 stk. kúrbítur
- » 50 g hjartahnetur (cashewhnetur)
- » 50 g furuhnetur
- » Chili-sojasósa
- » 2 msk. sojasósa, sæt
- » 4 msk. sesamfræ
- » 2 msk. kjúklingachilisósa (Sweet Chili for Chicken)
- » 2 msk. síróp (Maple Syrup)
- » 2 stk. hvítlauksrif
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 1 dl hvítvínsedik
- » salt og pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Kjúklingurinn skorinn í strimla, u.þ.b. 1x5 cm, og marineraður með rækjunum í 4-6 tíma. Látið renna vel af bitunum og leggið í maizenamjöl til að þurrka. Gætið þess að ekki sé of mikil marinering á rækjunum og kjúklingabitunum, það gæti myndað of þykkan hjúp. Djúpsteikið kjúkling og rækjur í 2 mínútur. Leggið á smjörpappír og haldið heitu.
Djúpsteiktar núðlurNúðlurnar lagðar í léttsaltað sjóðandi vatn í 4 mín. Hellt í sigti, vatnið látið renna af. Núðlurnar eru síðan djúpsteiktar í fjórum hlutum, svo þær mynda einskonar net þegar þær eru teknar uppúr og lagðar á hvern disk.
Litríkt grænmetissalatGrænmetið saxað, öllu blandað saman og lagt yfir djúpsteiktu núðlurnar. Rækjurnar og kjúklingurinn þar ofaná. Léttbrúnið hnetur og möndluspæni á þurri, heitri pönnu og stráið yfir salatið. Sósunni skvett yfir.
Chili-sojasósaÖllu blandað saman. Sósan látin standa í 1-2 tíma fyrir notkun.
Kúrbítur er sneiddur eftir endilöngu með ostaskera ...
... og síðan skorinn í strimla.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










