Pönnugrillað tófú með papriku og rauðkáli

Hráefni
» 500 g tófú, skorið í 4x4 cm bita
» matarolía til steikingar
» Marinering
» 3 msk. matarolía
» 2 msk. sojasósa
» 1 msk. kóríanderlauf, söxuð
» 1 tsk. engifer, saxaður
» 1-2 tsk. hvítlauksduft
» Hrærið saman og látið standa í 3-4 tíma fyrir notkun.
» Rauðkálssalat
» 200 g rauðkál
» 100 g sykurbaunir
» 1-1/2 stk. paprika (t.d. rauð, gul og græn)
» 50 g hjartahnetur (cashewhnetur), brúnaðar á pönnu
» Djúpsteiktir blaðlauksstrimlar
» 100 g blaðlaukur
» olía til djúpsteikingar
» Kóríandersósa
» 1-1/2 dl matarolía
» 1-1/2 dl hvítvínsedik
» 1 dl appelsínuþykkni
» 2 msk. ostrusojasósa
» 1 tsk. hvítlauksduft
» 4 msk. kóríanderlauf, söxuð
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Leggið tofú-bitana í marineringuna í 1 klst.

Tófú er síðan steikt á pönnu í 4-5 mínútur (æskilegt er að nota grillpönnu, þá koma fallegar grillrákir í bitana). Haldið heitu. Kryddað með salti og pipar úr kvörn eftir smekk. Berið fram með rauðkálssalati og kóríandersósu.

Rauðkálssalat

Skerið sykurbaunir, papriku og rauðkál í strimla. Sjóðið sykurbaunirnar í 3-5 mínútur í léttsöltu vatni. Kælið og blandið saman við önnur hráefni. Sett á miðjan disk. Steikt tófú lagt að salatinu og sósunni hellt yfir. Skreytt með djúpsteiktum blaðlauk.

Kóríandersósa

Öllu blandað saman, látið standa 2-3 tíma fyrir notkun.

Hollráð

Gott gæti verið að dreifa 1 msk. af marineringunni yfir réttinn.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar