Agúrku- og baunaspírusalat með reyktum laxi

Hráefni
» 600-800 g reyktur lax í sneiðum
» 1 stk. agúrka
» 12 stk. cherrytómatar
» 1 bakki baunaspírur
» 1 haus Lollo Rosso
» 2 stk. hvítlaufssalat (endívur)
» 1 haus eikarlauf
» 4 msk. graslaukur
» 8 msk. furuhnetur
» 8 msk. hjartahnetur (cashewhnetur)
» Hvítlauks- og balsamedikssósa
» 2 dl balsamedik
» 2 dl matarolía
» 2 stk. hvítlauksrif, söxuð
» salt og pipar

Fyrir 4

Aðferð

Rífið niður laufsalat og baunaspírur, skerið hvítlaufssalatið í sneiðar, setjið allt í skál. Léttbrúnið hneturnar á heitri, þurri pönnu. Agúrkurnar flysjaðar (t.d. með ostaskera) og síðan skornar í sneiðar. Cherrytómatarnir skornir í tvennt. Laxasneiðarnar skornar í bita. Blandið öllu saman við salatið og stráið graslauknum yfir þegar salatinu hefur verið skipt á diska. Hellið sósunni yfir. Stráið léttbrúnuðum hnetum yfir salatið um leið og það er borið fram.

Hvítlauks- og balsamedikssósa

Hrærið vel saman ediki, olíu og söxuðum hvítlauk. Kryddið með salti og pipar. Þessa sósu má bera fram strax en hvítlauksbragðið verður fyllra eftir því sem hún stendur lengur, t.d. í sólarhring í ísskáp.

Agúrkan afhýdd ...

... og sneidd með ostaskera.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar