Kjúklingalifur með hindberjaedikssósu

Hráefni
» 250 g kjúklingalifur
» 2 stk. kjúklingabringur, beinlausar
» 150 g spínatlauf, fersk (eða frosin)
» 200 g skalotlaukur
» 3 msk. ólífuolía
» 1 msk. smjör
» salt og svartur pipar úr kvörn
» Salat
» 1 stk. rauðlaukur
» 2 stk. tómatar
» 100 g strengjabaunir
» 1-2 hausar Lollo Rosso
» 1 stk. hvítlaufssalat (endívur)
» 20 stk. hindber, fersk
» Hindberjaedikssósa (vinaigrette)
» 1 dl hindberjasaft
» 1-1/2 dl rauðvínsedik
» 2 msk. graslaukur
» 50 g hindber, ný, maukuð
» 1 dl kjúklingasoð (eða vatn og 1/2 teningur)
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Skerið kjúklingabringurnar í strimla og steikið í olíu í tvær mínútur. Skerið lifrina í strimla eða litla bita og bætið á pönnuna í aðrar tvær mínútur, brúnið vel. Bragðbætt með salti og nýmöluðum svörtum pipar. Tekið til hliðar og haldið heitu. Saxið spínat og skalotlauk, steikið í smjörinu, kryddið með salti og pipar. Haldið einnig heitu.

Salat

Skerið tómatana í tvennt, hreinsið innan úr þeim með skeið og skerið síðan í strimla. Skerið af báðum endum strengjabaunanna og sjóðið þær í 3 mínútur í léttsöltu vatni. Kælið og blandið síðan saman við salatið. Rífið salatið, skiptið á diska og setjið kjúklingastrimlana og lifrarbitana í kringum salatið ásamt ferskum hindberjum. Hellið sósunni yfir.

Hindberjaedikssósa (vinaigrette)

Kælið soðið og blandið síðan saman við önnur efni. Pískið vel saman.

Hollráð

Ef ekki fást hindber má nota t.d. jarðarber eða brómber í staðinn og í sama magni.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar