Salat með kjúklinga- og grísakjötstrimlum
- Hráefni
- » 1 stk. kjúklingabringa, stór, beinlaus
- » 300 g svínasnitzel
- » 1 bakki baunaspírur
- » 100 g sveppir
- » 2 msk. sojaolía til steikingar
- » salt og pipar úr kvörn
- » Salat
- » 1 haus eikarlaufssalat
- » 1 haus rauðlaufssalat (radicchio)
- » 1 haus frise salat
- » 4 msk. sólblómafræ
- » 4 msk. heilt hveiti
- » 2 stk. appelsínur
- » 2 stk. greipaldin, rauð
- » Timianedikssósa (vinaigrette)
- » 1 msk. kjúklingachilisósa
- » 1 dl matarolía
- » 1 dl hvítvínsedik
- » 1 dl appelsínusafi, ferskur
- » 1 tsk. timian
- » salt og pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Skerið kjötið í strimla og veltið því upp úr sojaolíunni, kryddið með salti og pipar úr kvörn. Steikið síðan strimlana á snarpheitri pönnu í 2-3 mínútur. Takið af og haldið heitu. Skerið sveppi í sneiðar og léttsteikið með baunaspírum á pönnu í 2 msk. af sojaolíu. Kryddað með salti og pipar. Haldið heitu með kjötstrimlunum.
SalatSólblómafræin og heila hveitið léttbrúnað á heitri, þurri pönnu, látið kólna. Rífið salatið niður og blandið saman. Skiptið á diska og leggið kjötstrimlana þar yfir ásamt sveppasneiðum og baunaspírum. Edikssósunni hellt yfir og síðan brúnuðum sólblómafræjum og heila hveitinu. Afhýðið að síðustu greipaldin og appelsínur og setjið nokkur lauf á hvern disk með salatinu. Miðað er við þurrkað timian. Ef til er ferskt þarf 2 tsk.
Timianedikssósa (vinaigrette)Blandið öllum efnum í skál og pískið saman.
Appelsína/greipaldin afhýdd með beittum hníf.
Skerið aldinkjötið frá ...
... og skreytið hvern disk.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










