Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Laufsalat með beikonhumri
- Hráefni
- » 20 stk. humarhalar, skelflettir
- » 20 stk. beikonsneiðar
- » 20 stk. tannstönglar
- » 2 msk. ólífuolía
- » Laufsalat
- » 1 haus frise salat
- » 1 haus eikarlaufssalat
- » 1 haus hvítlaufsalat (heil lauf)
- » 1 haus rauðsalat (radicchio)
- » Sítrusedikssósa (vinaigrette)
- » 2 msk. sítrónusafi
- » 1 dl appelsínusafi (ferskur)
- » 2 dl hvítvínsedik
- » 2 dl matarolía
- » 1 dl ólífuolía
- » salt og pipar
Fyrir 4
Aðferð
Beikonið er vafið utan um humarinn og fest með tannstöngli. Steikt í heitri ólífuolíunni. Tannstöngullinn er fjarlægður þegar beikonið er vel brúnað. Haldið heitu á meðan salatinu er skipt á diska. Humarinn með beikoninu lagður ofan á salatið og kryddað með svörtum, nýmöluðum pipar.
LaufsalatRífið salatið niður í skál, hellið sítrussósunni yfir og blandið vel saman.
SítrusedikssósaÖllu blandað saman með písk eða gaffli - og sósan er tilbúin.
HollráðÞetta salat getur einnig verið sjálfstæð máltíð eða forréttur, en þá þarf að auka eða minnka magnið.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/259/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









