Lárperu- og laxabaka
- Hráefni
- » Botn
- » 150 g hveiti
- » 75 g heilhveiti
- » 50 g smjör eða smjörlíki
- » 1 stk. egg
- » 1/2 tsk. salt
- » 1/2 dl vatn
- » Fylling
- » 300 g reyktur lax, skorinn í strimla
- » 1 stk. hvítlauksrif, saxað
- » 150 g spínat
- » 1 msk. basil, ferskt, saxað
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 2 msk. sojaolía
- » 2 stk. tómatar
- » 2 stk. lárperur (avocado)
- » 4 stk. egg
- » 1 tsk. sítrónusafi
- » 2 dl rjómi
- » 100 g mozzarellaostur, rifinn
- » salt og pipar úr kvörn
Fyrir 6
Aðferð
Botninn: Hnoðið vel saman í hrærivélarskálinni þar til deigið hefur samlagast vel, ljúkið þá við að hnoða í höndunum. Setjið í plastfilmu og hvílið í kæli í 2-3 klst. Fletjið síðan út á borði og leggið í eldfast mót, 24-26 cm. í þvermál. Þrýstið vel að köntunum og skerið afgangs deig frá þegar fyllingin er komin í.Fyllingin: Skerið rauðlauk í strimla og steikið í olíu með spínati og hvítlauk. Látið kólna. Lárperur skornar til helminga og steinninn fjarlægður, lárperukjötið tekið innan úr hýðinu með skeið og skorið í sneiðar. Blandið þessu nú saman við laxastrimlana, tómata í sneiðum og annað grænmeti og leggið í deigið. Pískið saman rjóma, egg, sítrónusafa og krydd, hellið yfir fyllinguna og stráið mozzarellaostinum þar yfir. Bakið við 190°C í 40-45 mín. Berið fram heitt eða kalt með fersku grænmetissalati.
Deigið lagt í formið og fyllingin ofan á.
Hornin brotin inná bökuna, parmesanostur og beikonsneiðar lagðar yfir.
Tilbúið til baksturs.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati










