Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Pastarör með hörpuskel á teini
- Hráefni
- » 600 g hörpuskel
- » 8 stk. grillpinnar, stuttir
- » 3 msk. ólífuolía til steikingar
- » 2-3 msk. hveiti
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » 350 g pastarör (cannelloni)
- » 3 l vatn, léttsaltað
- » 1-2 msk. ólífuolía (út í vatnið)
- » Meðlæti
- » 3 stk. hvítlauskrif, stór (eða risahvítlauksrif)
- » 1 stk. rauðlaukur
- » 4 msk. fururhnetur, létt brúnaðar
- » 8 msk. hjartahnetur (cashewhnetur), létt brúnaðar á þurri, heitri pönnu
- » 1/2 haus jöklasalat
- » 250 g radísur
- » 2 msk. ólífuolía til steikingar
- » Balsamedikssósa
- » 2 dl balsamedik
- » 2 dl matarolía
- » 1 stk. stórt hvítlauksrif (eða risahvítlauksrif), saxað
- » 1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
- » salt og svartur pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Pastað soðið í 15 mín. og síðan kælt. Veltið hörpuskelinni upp úr hveiti og þræðið upp á pinnana, ætlið tvo pinna á mann. Steikið í olíu á snarpheitri pönnu í 1-2 mínútur, kryddið með salti og pipar. Tekið til hliðar og haldið heitu.
MeðlætiSaxið hvítlauk og rauðlauk, brúnið lauslega á pönnu, blandið síðan saman við brúnaðar furuhnetur og hjartahnetur, rifið jöklasalat og sneiddar radísur. Blandið grænmetinu saman við heitt pastað. Skiptið á diska og setjið grillpinnana með skelfiskinum ofan á. Berið sósuna fram með í skál.
BalsamedikssósaBlandið öllum efnum saman í skál, pískið vel. Berið fram strax.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/264/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira









