Hagkaup
|
mbl
|
6. maí
Spínatspaghetti með kjúklingaleggjum
- Hráefni
- » 400 g spaghetti (grænt eða hvítt)
- » 2-3 l vatn, léttsaltað
- » 1-2 msk. ólífuolía (út í vatnið)
- » 12 stk. kjúklingaleggir
- » 2-3 msk. ólífuolía til penslunar
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » Fersk tómatmaukssósa
- » 300 g tómatar, ferskir
- » 1 dl matarolía
- » 2 stk. rauðlaukur
- » 1 dl grænmetissoð
- » 1 msk. hvítvínsedik
- » 1 tsk. timian
- » salt og svartur pipar úr kvörn
- » Gufusteikt grænmeti
- » 10 stk. vorlaukur
- » 1 stk. hvítlaufssalat (endíva)
- » 16 stk. spergill, grænn
- » 3 msk. matarolía til steikingar
- » 1 dl grænmetissoð (vatn og teningur)
- » salt og svartur pipar úr kvörn
Fyrir 4
Aðferð
Spaghettíið soðið skv. leiðbeiningum á pakka. Kjúklingaleggirnir brúnaðir á pönnu og síðan ofnsteiktir áfram í 12-15 mín. við 200°C. Skiptið pasta og gufusteiktu grænmeti á fjóra diska og leggið þrjá kjúklingaleggi yfir hvern disk. Sósan yfir og um kring.
Fersk tómatmaukssósaAllt maukað í matvinnsluvél í 2-3 mínútur.
Gufusteikt grænmetiSnyrtið spergil og vorlauk að neðan með grænmetis- eða kartöfluflysjara. Sneiðið hvítlaufssalatið eftir endilöngu.
Brúnið allt grænmeti á heitri pönnu, kryddið með salti og pipar. Hellið soðinu út á og sjóðið undir loki í 2-3 mínútur.
Skerið endana af sperglinum.
Spergillinn snyrtur með flysjara.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/267/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira










