Pastahjól með kjúklingaleggjum og smokkfiski

Hráefni
» 250 g pastahjól (ruoti)
» 2 l vatn, létt saltað
» 1-2 msk. ólífuolía út í vatnið
» 200 g smokkfiskur
» 8 stk. kjúklingaleggir
» 2 msk. olía til penslunar
» 4-5 sneiðar beikon
» 6 msk. ólífuolía til steikingar
» salt og svartur pipar úr kvörn
» Grænmetismeðlæti
» 1 stk. paprika, rauð (eða blanda af rauðri, gulri og grænni)
» 1 stk. kúrbítur (zucchini)
» 4 msk. ólífuolía til steikingar
» salt og svartur pipar úr kvörn
» 100 g blaðlaukur
» olía til djúpsteikingar
» Fersk tómat- og paprikusósa
» 100 g tómatar
» 2 stk. paprika, rauð (200 g)
» 1 stk. skalotlaukur
» 2 stk. hvítlauksrif
» 2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
» 4 msk. tómatsósa
» 1 tsk. rósmarín
» 1 dl hvítvínedik
» 1 dl matarolía
» salt og pipar úr kvörn

Fyrir 4

Aðferð

Sjóðið pastað í léttsöltu vatni með 1-2 msk. af olíu. Skolið vel og kælið. Brúnið kjúklingaleggina á pönnu, kryddið með salti og svörtum pipar. Ofnsteikið síðan í 12-14 mínútur við 200°C. Snöggsteikið beikonið. Skerið smokkfiskinn eftir endilöngu, fletjið út og skáskerið í hann raufar, fyrst langsum, síðan þversum. Skerið síðan í 2 cm breiða strimla eftir endilöngu. Snöggsteikið í olíunni af beikoninu. Takið nú beikon og smokkfisk af pönnunni og haldið heitu.

Grænmetismeðlæti

Skerið grænmeti í teninga. Hitið pönnuna á nýjan leik og snöggsteikið grænmetisteningana ásamt pastanu. Kryddað með salti og pipar. Skiptið jafnt á diska og leggið tvo kjúklingaleggi á hvern disk ásamt beikoni og smokkfiski.

Djúpsteikið blaðlaukinn þar til hann hefur brúnast fallega. Látið drjúpa af honum á servíettu, saltið lítið eitt og leggið yfir hvern disk.

Fersk tómat- og paprikusósa

Allt sett í matvinnsluvél, maukað í 2 mínútur. Borið fram strax.

Báðir endar af smokkfisknum

fjarlægðir.

Skáskerið raufar í smokkfiskinn

útflattann, fyrst langsum ...

... og síðan þversum.

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar