Núðlur með svínakjöti og rækjum

Hráefni
» 600 g svínakjöt í strimlum (t.d. úr snitzel)
» 1 dl sojasósa, sæt
» 2-3 msk. maizenamjöl
» Blandaðar núðlur
» 500 g eggjanúðlur
» 3 l vatn
» 2 tsk. salt
» 2-3 msk. ólífuolía í vatnið
» olía til djúpsteikingar
» Meðlæti
» 400 g rækjur
» 120 g baunaspírur
» 6 stk. hvítlauksrif
» 100 g sykurbaunir
» 100 g rauðlaukur
» 1-2 stk. hvítlaufssalat
» 1 stk. fennikka
» 2 tsk. kóríanderduft
» 1-2 msk. appelsínuþykkni
» 2 dl ostrusojasósa
» 1 bakki blandaðar baunir
» 4 msk. graslaukur
» 1/2 dl matarolía til steikingar

Fyrir 4

Aðferð

Veltið svínakjötsstrimlunum upp úr sætu sojasósunni og síðan upp úr maizenamjölinu. Djúpsteikið svínakjötsstrimlana í 2 mínútur. Takið uppúr og haldið heitu.

Skiptið núðlunum á diska, leggið svínakjötsstrimlana og grænmetið ofan á. Skreytið með baunaspírum, baunum og graslauk.

Blandaðar núðlur

Sjóðið eggjanúðlurnar í 4 mínútur, takið úr vatninu og skolið vandlega. Haldið heitum.

Meðlæti

Saxið grænmetið - nema hvítlaufssalatið sem er skorið í sneiðar eftir endilöngu og fennikkan í sneiðar. Snöggsteikið grænmetið á pönnu, kryddið og bætið síðan appelsínuþykkni og ostrusósu á pönnuna. Látið sjóða í 1 mínútu.

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar